Stjórnmál

Gætu myndað tveggja flokka stjórn

Ritstjórn mbl.is

2025-04-01 16:55

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn bæta við sig fylgi á milli mánaða samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup. Miðað við fylgistölurnar gætu flokkarnir myndað saman tveggja flokka ríkisstjórn.

RÚV greinir frá.

Samfylkingin mælist með 27% fylgi og myndi 19 þingmenn. Flokkurinn fékk 20,8% fylgi í síðustu kosningum og hefur því bætt við sig verulega frá þeim.

Sjálfstæðisflokkur ekki mælst stærri í tvö ár

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 22,4% fylgi og hefur ekki mælst stærri í mælingum Gallup í slétt tvö ár. Fengi flokkurinn 16 þingmenn en fyrir mánuði síðan var Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður flokksins.

Viðreisn mælist með 14,6% fylgi og Miðflokkurinn mælist með 9,3% fylgi.

Flokkur fólksins heldur áfram tapa fylgi frá kosningum og mælist með 7,7% fylgi.

Framsókn mælist með 5,7% fylgi og Sósíalistaflokkurinn 5,4% fylgi, en hann náði ekki manni inn á þing síðast. Píratar mælast með 4% fylgi og Vinstri græn 3,3% fylgi.

Nafnalisti

  • Guðrún Hafsteinsdóttirfyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins
  • Vinstri græneinfaldlega þannig flokkur sem segir

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 155 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 91,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,79.