Góð reynsla af heimili fyrir bágstaddar stúlkur í Kenía sem Ísland styrkir

Innanríkisráðuneyti

2025-03-12 09:50

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Niðurstöður nýrrar úttektar á vegum utanríkisráðuneytisins, sem framkvæmd var af Verkís verkfræðiskrifstofu, benda til verkefnið Haven Rescue Home í Kenía, sem utanríkisráðuneytið styrkti með nýliðastyrk fyrir frjáls félagasamtök um fjórar milljónir króna árið 2021, hafi skilað haldbærum árangri.

Haven Rescue Home er heimili í Naíróbí fyrir bágstaddar stúlkur 18 ára og yngri, sem eru ýmist barnshafandi eða mæður ungra barna, og er rekið af Önnu Þóru Baldursdóttur. Heimilið var stofnað árið 2015 með það markmiði skapa öruggt umhverfi og styðja við ungar stúlkur og börn þeirra.

Ráðuneytið hefur birt áðurnefnda úttekt þar sem finna áhugaverðar sögur um afdrif stúlkna sem hafa dvalið á heimilinu og sýna fram á haldbæran árangur af starfinu. Í úttektinni eru jafnframt settar fram sex tillögur til úrbóta.

Við fögnum þessum árangri auðvitað sérstaklega. Hann sýnir glögglega hvernig stuðningur frá Íslandi getur skipt sköpum fyrir lítið og mikilvægt verkefni eins og heimilið hennar Önnu Þóru í Naíróbí, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. En fyrst og fremst er þetta vitnisburður um dýrmætt framtak íslensks eldhuga sem brennur fyrir réttindum þeirra sem minna mega sín.

Á heimilinu búa 15 stúlkur á aldrinum 1218 ára með fimm börn sín, en alls hafa 75 stúlkur fengið vist á heimilinu frá árinu 2017. Verkefnið fellur vel stefnuáherslum Íslands á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu, og er samþætt við staðbundin kerfi, s.s. barnaverndaryfirvöld.

Nafnalisti

  • Anna Þóra Baldursdóttir
  • Haven Rescue Homeheimili
  • Verkísverkfræðistofa
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 236 eindir í 10 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,83.