Stjórnmál

Bregðast við tillögu að vopnahléi

Ritstjórn mbl.is

2025-03-11 23:22

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Helstu leiðtogar Evrópu hafa brugðist við svokölluðum jákvæðum skrefum í átt vopnahléi í innrásarstríði Rússa í Úkraínu í dag. Fagna þeir því Úkraína hafi ákveðið samþykkja tillögu Bandaríkjanna um koma á 30 daga tafarlausu vopnahléi til bráðabirgða.

Rússar hafa ekki enn samþykkt tillöguna en Donald Trump Bandaríkjaforseti segist munu ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í dag eða á morgun.

Ég fagna samkomulaginu innilega og óska Donald Trump Bandaríkjaforseta og Volodimír Selenskí Úkraínuforseta til hamingju með þessi merkilegu tímamót. verða Rússar samþykkja vopnahlé og binda enda á átökin, sagði Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands í yfirlýsingu.

Skref í átt varanlegu vopnahléi

Í svipaðan streng tók Giorgia Meloni forsætisráðherra Ítalíu, sem segist fagna því Úkraína hafi samþykkt tímabundið vopnahlé. Kveðst hún styðja Bandaríkjastjórn undir forystu Trumps til koma á varanlegu vopnahléi.

Sömuleiðis hefur Emmanuel Macron Frakklandsforseti brugðist við og segir boltinn greinilega hjá Rússum. Hann kveðst vonast til þess 30 daga vopnahlé verði samþykkt.

Tveir æðstu embættismenn Evrópusambandsins hafa einnig fagnað árangrinum sem náðist á fundi Bandaríkjanna og Úkraínu í Sádi-Arabíu í dag.

Þetta er jákvæð þróun sem getur verið skref í átt varanlegum friði í Úkraínu. Boltinn er hjá Rússum, sögðu Ursula von der Leyen, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins, og Antonio Costa, forseti Evrópuráðsins, í yfirlýsingu.

Nafnalisti

  • Antonio Costaforsætisráðherra Portúgals
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Emmanuel Macronforseti
  • Giorgia Meloniforsætisráðherra Ítalíu
  • Keir Starmerleiðtogi Verkamannaflokksins
  • Ursula von der Leyenforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
  • Vladimír Pútínforseti
  • Volodimír Selenskíforseti Úkraínu

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 228 eindir í 13 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,70.