Kristni og íslam: Sam­fé­lag sem hvílir á skilningi

Skúli S. Ólafsson

2025-03-29 10:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

á dögunum tók ég þátt í málþingi um kristni og íslam sem fram fór í Vídalínskirkju í Garðabæ. Fjallað var um sambúð, samskipti og sameiginlega framtíð þessara trúarhópa.

Hvað getur þú gert fyrir mig, prestur?

Aðalfyrirlesarinn var Sten Skovsgaard fyrrum biskup í dönsku kirkjunni en hann var á sínum tíma prestur í Gellerup hverfinu í Árósum þar sem múslímar eru í miklum meirihluta íbúanna. Hann hefur verið leiðandi í samtali og samvinnu dönsku kirkjunnar með fulltrúum þessa trúarhóps.

Hann segir frá einum fyrsta fundi sínum með þeim, um miðjan tíunda áratuginn. Eftir nokkurt kurteisishjal stóð ungur maður upp og spurði: Hvað getur þú gert fyrir mig, prestur? Skovsgaard svaraði á þessa leið: Ég hef líklega bara ódýrt svar í þínum huga. Ég á aðeins náð sem ég get miðlað þér, en orðið náð er á latínu gratia, sem merkir gjöf.

Þetta svar féll ekki í kramið hjá gestgjöfum hans og sjálfur var hann ósáttur það hvernig hann hafði brugðist við. Samskipti þessi sátu í honum og hann spurði sig hvort hann hefði ekki getað svarað með gagnlegri hætti. Síðar skrifaði Skovsgaard bók með þessum titli: Hvað getur þú gert fyrir mig prestur?

Samtal trúarhópa

Við þekkjum umræðuna hérna heima og víðar í kjölfar þess samfélagsgerðin er breytast. Víða er fólk uggandi og ýmsar sögur fara af stað. Á þessu málþingi töluðu líka hjónin Hilal Kücükakin og Muhammed Emin Kizilkaya um reynslu sína af því vera múslmar á Íslandi. Þau hafa verið virk í slíku samtali hér á Íslandi.

Þau skoða þessi samskipti sem danski biskupinn ræddi. Hjónin greindu frá því hversu algengt það hefur verið komið væri fram við þau eins og stórhættulegt fólk. Hilal er alin upp í Danmörku og var hún aðeins sex ára þegar árásin var gerð á tvíburaturnana. Hún lýsti því hvernig hún hafði frá barnsaldri setið undir óvægnum ásökunum um einhvers konar aðild voðaverkum.

Samtal kristinna manna við fólk með aðra lífsskoðun getur tekið á sig ýmsar myndir en hún snýst ekki um varpa því frá okkur sem við höfum mótað og byggt upp í gegnum tíðina. Danski biskupinn ræddi það einmitt hvernig sambúðin með öðrum trúarhópum hefur eflt kristna trú, í stað þess veikja hana. , gamalgróinn siður hefur verið jafn sjálfsagður fyrir fólki eins og sjórinn er fiskunum en þegar andstæð sjónarmið mæta okkur, ólíkar hugmyndir og hefðir, þá fer fólk spyrja hvað það er sem gefur kristnum samfélögum sérstöðu sína.

Hann vitnaði í heimspekinginn Karl Popper sem talaði um þá þverstæðu umburðarlyndi án takmarkana leiddi af sér umburðarleysi. Í marglitu samfélagi þýðir þetta við þurfum hlúa minnihlutahópum enda er afstaðan til jaðarhópa lykilatriði í kristinni trú. En þeir eiga ekki drottna yfir meirihlutanum. Það felur í sér áskorun deila samfélagi með fólk sem hefur ólíkar hugmyndir en af því getur leitt margt gott.

Fólk á ferð

, hvað getur prestur gert fyrir fólk sem aðhyllist aðra lífsskoðun? Nokkru síðar sagðist hann hafa fundið annað og betra tilsvar, honum fannst, við spurningunni sem ungi múslíminn bar fram.

Svarið var eitthvað á þessa leið: Mér þykir leitt valda þér vonbrigðum því ég held ég hafi ekkert bjóða þér. Mér sýnist þú sáttur í þinni sannfæringu og þú búir ríkidæmi í þeim efnum. Þú ert barmafullur af íslam. Fagnaðarerindið er aftur á móti fyrir hin fátæku, þau sem hungrar og þyrstir, það er fyrir hin tómhentu. Það á erindi til þeirra sem telja sig ekki geta af eigin rammleik geta framkvæmt vilja Guðs. Það er fyrir syndara. Jesús lifði og fyrir það fólk sem svo er ástatt um. Mér sýnist á öllu þú lítir ekki á þig þeim augum. En ef þú kemst þeirri niðurstöðu þú hafir eigin mati ekki gert nóg í tengslum þínum við Guð og náungann, eða ef þú ert í efa um kærleika Guðs til þín og óttast dóminn, þá lofaðu mér því snúa aftur til mín því ég hef svolítið handa þér. Fram því geturðu verið sáttur í þinni trú.

Þetta er kjarninn í okkar trúarhefð. Við erum fólk á ferðalagi í margvíslegum skilningi. Biblían krefst þess ekki við séum gallalaus. Við göngum þvert á móti inn í samtalið við þau sem eru fóta sig á nýjum slóðum og finna fyrir fordómum og neikvæðni. Það er hluti af köllun hverrar kristinnar manneskju mæta fólki sem býr við slíkar aðstæður. Eins og öll góð samskipti, þá byggja þau á því fólk gefi og þiggi, en hvíli um leið á því sem það sjálft telur gott og trúir á.

Höfundur er sóknarprestur í Neskirkju, Reykjavík.

Nafnalisti

  • Hilaleinn rannsakenda
  • Hilal Kücükakin
  • Jesúsbarn
  • Karl Popperausturrískur heimspekingur
  • Muhammed Emin Kizilkayaháskólanemi
  • Sten Skovsgaard

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 838 eindir í 48 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 41 málsgrein eða 85,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.