Stjórnmál

Litlar breytingar á fjármálaáætlun

Ritstjórn mbl.is

2025-04-01 06:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ríkisstjórnin hélt upp á 100 daga afmæli sitt í gær og kynnti nýja fjármálaáætlun fyrir 20262030. Oddvitar stjórnarinnar lögðu áherslu á traust og trúnað í samstarfinu, en áherslan fram á við yrði á efnahagslegan stöðugleika, fyrirhyggju og fyrirsjáanleika.

Stefnt er hallalausum ríkissjóði 2027 og jafnvægi í opinberum rekstri 2028. Hagræða á í opinberum rekstri um 107 milljarða króna, m.a. með kerfisbreytingum og sameiningu stofnana, sem leitt geti til fækkunar opinberra starfa. Þjónusta og nýting fjármuna ríkisins verði í forgangi.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði við kynningu fjármálaáætlunar í gærmorgun hún væri afar skýr, með útfærðum aðgerðum ólíkt fyrri áætlunum. Ekki er þó sjá nýja fjármálaáætlunin verulega frábrugðin hinni fyrri.

Þar er þó kynnt stöðugleikaregla, sem kann leiða til skattahækkana, hvað sem öllum heitstrengingum um hið gagnstæða líður, ef útgjöldin þenjast út.

Alls er gert ráð fyrir 35 milljörðum kr. í útgjöld, mestu eða 11 milljörðum í félags- og tryggingamál, sem Inga Sæland félagsmálaráðherra segir muni gagnast 65 þúsund öryrkjum og eldri borgurum, tryggja umtalsverðar kjarabætur fyrir 95% öryrkja, sagði hún.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði Flokk fólksins hafa haft afgerandi áhrif á fjármálaáætlunina, sem sýndi vel mikilvægi hans og áhrif í ríkisstjórnarsamstarfi þótt einhverjir hefðu viljað efast um hann. Hún gerði lítið úr vandræðum flokksins og afleiðingum fyrir stjórnina, þótt ráðherraskipti hefðu orðið í liðinni viku.

Nýir tekjustofnar, eins og tvöföldun veiðigjalda, endurskoðað bifreiðagjald frá 1. júlí og gjald við náttúruperlur, eiga styðja við fjármálaáætlunina.

Nafnalisti

  • Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Inga Sælandformaður
  • Kristrún Frostadóttirformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 267 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 91,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.