Slys og lögreglumál

Litáískur barnaníðingur kom sér undan refsingu með því að koma til Íslands - Neitar nú að fara aftur heim

Ritstjórn DV

2025-04-02 13:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Barnaníðingur frá Litáen hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 22. apríl á meðan íslensk yfirvöld taka fyrir afhendingarbeiðni frá yfirvöldum í Litáen. Handtökuskipun var gefin út þar í landi í febrúar á þessu ári en maðurinn var í maí á síðasta ári sakfelldur fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn barnungri stúlku.

Hinn eftirlýsti var dæmdur í átta ára fangelsi fyrir hafa árið 2015 framið þrjú kynferðisbrot gegn barnungri stúlku á sameiginlegu heimili hennar. Hann hafi áreitt hana kynferðislega, gert tilraun til láta hana hafa við sig munnmök og haft við hana samræði. Eins var hann sakfelldur fyrir hafa með þessum brotum valdið stúlkunni andlegum skaða.

Ríkissaksóknari sendi lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu bréf í byrjun mars. Þar var lögreglustjóra falið handtaka eftirlýsta manninn í þágu meðferðar handtökuskipunarinnar. Eins var lögreglustjóra falið, í ljósi alvarleika brotanna, krefjast gæsluvarðhalds og til vara farbanns. Hinn eftirlýsti mætti til skýrslutöku hjá lögreglu og gekkst við því vera maður sem handtökuskipunin fjallar um. Hann neitaði hins vegar vera afhentur til Litáen.

Lögregla rökstuddi kröfu sína um gæsluvarðhald með vísan til alvarleika brotanna og þyngdar refsingarinnar. Brotin sem hann var sakfelldur fyrir eru refsiverð hér á landi og þykja meðal alvarlegustu brota sem hér er hægt fremja. Miklar líkur væru á maðurinn reyndi koma sér úr landi til sleppa undan fangelsisvist eða hann muni reyna fara hér huldu höfði. Það auðvelt fyrir eftirlýsta menn fela sig á Íslandi og eins mikil hætta á þeir forði sér úr landi þar sem landamæraeftirlit er lítið innan Schengen-svæðisins.

Héraðsdómur Reykjavíkur tók undir með lögreglu. Maðurinn væri sekur um alvarleg brot og hefur verið dæmdur til þungrar refsingar. Vægari úrræði en gæsluvarðhald komi ekki til greina. Hann þar að auki erlendur ríkisborgari og hætt við því hann freisti þess fara huldu höfði hér á landi eða hann forði sér úr landi. Því var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Maðurinn áfrýjaði úrskurðinum til Landsréttar en þar var málinu vísað frá þar sem áfrýjað var eftir kærufrestur var liðinn.

Nafnalisti

  • Héraðsdómur Reykjavíkursá úrskurður staðfestur í Landsrétti

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 357 eindir í 20 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 95,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.