Stjórnmál

„Allt að því hroki eða yfir­læti“ að tala um reynslu­leysi

Árni Sæberg

2025-03-31 17:02

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja gefa lítið fyrir tal um ætlað reynsluleysi Flokks fólksins og áhrif þess á stjórnarsambandið. Formaður Viðreisnar segir slíkt tal merki um hroka og yfirlæti og bendir á Viðreisn og Flokkur fólksins hafi boðið fram fyrst sama árið.

Þetta var meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi þeirra Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra í dag. Þær blésu til fundar í tilefni af því eitt hundrað dagar eru liðnir frá því ríkisstjórn Kristrúnar tók til starfa.

Þá fjölluðu þær einnig um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til ársins 2030, sem kynnt var í morgun.

loknum ávörpum sínum biðu valkyrjurnar svokölluðu viðstöddum bera upp spurningar. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður nýtti tækifærið og spurði út í nokkur atvik sem komið hafa upp í tengslum við Flokk fólksins á þessum hundrað dögum. Þá helst hvort reynsluleysi flokksins hefði haft áhrif þar á.

Nei

Ef ég byrja þá myndi ég segja það nei, reynsluleysi er ekki gera neitt sem hefur áhrif á okkar frábæra samstarf. Þvert á móti hefur ágjöf sem þú nefnir, sem tengist Flokki fólksins, hún hefur einfaldlega bara þjappað okkur enn betur saman og við höldum bara áfram okkar góðu verkum. Við höfum hins vegar ætlað okkur í dag ræða um hundrað daga afmæli ríkisstjórnarinnar og erum ekki horfa í baksýnisspegilinn. Við segjum áfram veginn, sagði Inga.

Ríkisstjórnin ætli láta verkin tala og í herbúðum hennar ríki bjartsýni og bros. Ríkisstjórnin taki allri ágjöf sem svo hún styrki hana.

En reynsluleysið sem slíkt, við höfum aldrei verið í ríkisstjórn áður. Við lærum af þeim mistök sem við gerum. Ég segi það fyrir okkar hönd í Flokki fólksins, við erum náttúrulega einstaklega frábær og í alveg frábærri ríkisstjórn.

Engin áætlun án Flokks fólksins

Kristrún tók þá við og sagði fjármálaáætlun sem lögð var fram í dag hefði ekki verið lögð fram á Flokks fólksins, það væri alveg á hreinu.

Margar af stórum ákvörðunum sem hér er verið taka er vegna þess þessi ríkisstjórn er samsett eins og hún er í dag. Það er það sem situr eftir og fólk er samstillt í pólistískum skilaboðum. Koma upp mál út af alls konar þáttum sem eru alls ótengd pólitíkinni? . Þar maður eiga við þau? . Er það stundum erfitt? . En við fórum í þetta til vinna í pólitík, þetta er afrakstur þess. Ég er þakklát fyrir vera í ríkisstjórn með Flokki fólksins.

Hroki og yfirlæti

Loks tók Þorgerður Katrín við keflinu og sagðist taka heils hugar undir með Kristrúnu.

Reynsluleysi, ég veit ekki hvort það , fyrirgefðu, allt að því hroki eða yfirlæti. Af því Flokkur fólksins var stofnaður sama ár og Viðreisn, 2016. Hefur alveg jafnmikla reynslu á þingi og við í Viðreisn. Komum við frá ólíkum hópum í samfélaginu? , við gerum það. En fyrir vikið höfum við náð efla samstarf okkar þannig það er bæði gagnkvæmur skilningur og það er hreinskiptni. Fyrir vikið þá dýpkar samstarfið og verður betra mínu mati.

Nafnalisti

  • Berghildur Erla Bernharðsdóttirfréttamaður
  • Formaður ViðreisnarÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir
  • Inga Sælandformaður
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 556 eindir í 39 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 31 málsgrein eða 79,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,70.