Trump setur afarkosti: „Annars er þessu LOKIÐ fyrir ykkur“

Pressan

2025-03-06 09:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sent liðsmönnum Hamas-samtakanna harðorða hótun um sleppa öllum þeim gíslum sem enn eru í haldihvort sem þeir eru lífs eða liðnir.

Shalom Hamas þýðir bæði halló og bless-Þið megið velja. Sleppið öllum gíslunum núna, ekki síðar, og skilið líkamsleifum þeirra sem þið myrtuð. Annars er þessu LOKIÐ fyrir ykkur, sagði Bandaríkjaforseti á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, í gærkvöldi.

Bætti hann við aðeins sjúkir og klikkaðir einstaklingar myndu hafa lík í haldi. Og þið eruð sjúkir og klikkaðir. Ég ætla senda Ísraelsmönnum allt sem þeir þurfa til ljúka verkefninu. Ekki einn einasti liðsmaður Hamas verður öruggur ef þið gerið ekki það sem ég segi, sagði hann.

Trump bætti við hann hefði hitt einstaklinga sem hefðu verið í haldi Hamas, einstaklinga sem samtökin hafa eyðilagt á líkama og sál. Þetta er ykkar síðasta viðvörun, sagði hann og hvatti leiðtoga Hamas til yfirgefa Gasa ekki seinna en strax.

Hann beindi svo orðum sínum til óbreyttra borgara og sagði falleg framtíð bíði þeirra. En ekki ef þið haldið gíslum. Ef þið gerið það, eruð þið DAUÐ. Takið RÉTTA ákvörðun.

Í gær var greint frá því bandarísk stjórnvöld ættu í leynilegum viðræðum við Hamas um lausn bandarískra ríkisborgara sem eru í haldi samtakanna. Vitað er til þess einn bandarískur ríkisborgari í haldi samtakanna og á lífi, hinn 21 árs gamli Edan Alexander.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Edan Alexander
  • Shalommeðferðarstofa
  • Truth Socialsamfélagsmiðill

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 270 eindir í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 81,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.