Stjórnmál

Banda­ríkja­menn og Úkraínu­menn funda eftir munnhöggin í Hvíta húsinu

Rafn Ágúst Ragnarsson

2025-03-10 23:48

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Sendinefndir Bandaríkjanna og Úkraínu eru komnar til Sádí-Arabíu en fundur þeirra fer fram á morgun þar sem þess verður freist bæta skaddað samband þjóðanna og ræða mögulegt vopnahlé milli Úkraínu og Rússlands.

Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti og Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna eru báðir staddir í Jeddah-borg þar sem fundurinn fer fram þó Selenskí forseti taki ekki beinan þátt í viðræðunum frekar en Donald Trump Bandaríkjaforseti. Hann fór til Jeddah-borgar á fund Múhameðs bin Salman, krúnuprins Sádí-Arabíu.

Í stað Selenskís eru þó utanríkis- og varnarmálaráðherrar ríkisstjórnar hans. Hann birti færslu á samfélagsmiðla í dag þar sem sagði raunsæjar tillögur liggja fyrir.

Þessi fundur er fyrsti fulltrúa þjóðanna tveggja síðan Selenskí, Trump og Vance varaforseti munnhjuggust í Hvíta húsinu undir lok síðasta mánuðar. Selenskí var vísað á dyr án þess næðist undirrita samning sem kvað á um aðgengi Bandaríkjanna jarðefnaauðlindum Úkraínu sem til stóð á fundinum.

Í kjölfar fundarins stöðvaði Donald Trump alla hernaðaraðstoð Bandaríkjanna til Úkraínu og lokaði á aðgengi úkraínskra stjórnvalda njósnaupplýsingum.

Vólódímír Selenskí hefur sagst vera tilbúinn til undirrita samninginn og segist vongóður um fundurinn beri árangur hver svo sem árangur kann vera. Breski miðillinn Guardian greinir frá því gert ráð fyrir því úkraínska sendinefndin hyggist leggja til vopnahléstillögu sem feli í sér bann á flygilda- og eldflaugaárásum auk banns á öllum hernaðaraðgerðum í og yfir Svartahafi.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Marco Rubioöldungadeildarþingmaður
  • Múhameðspámaður
  • Salmankonungur Sádi-Arabíu
  • Vancedyggur stuðningsmaður Trumps
  • Vólódímír Selenskíforseti Úkraínu

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 232 eindir í 10 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,61.