Fram­tíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tor­tryggni

Helga Kristín Kolbeins

2025-04-01 14:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Yfirlýsingar félags- og húsnæðismálaráðherra um helgina hafa vakið verulega athygli. Þar heldur Inga Sæland því opinberlega fram Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtskóla, hafi mögulega gerst sekur um trúnaðarbrest. Ársæll hefur sjálfur lýst þessum aðdróttunum sem mjög ósmekklegum og telur þær vegi sínum starfsheiðri.

Þegar ráðherra efast opinberlega um fagmennsku skólameistara án staðfestra upplýsinga eða formlegrar málsmeðferðar, er ekki aðeins vegið einstaklingi heldur trausti til skólasamfélagsins í heild. Það hefur áhrif langt út fyrir einstaka skólaá allt menntakerfið og þá menningu sem við viljum rækta í samskiptum við börn, foreldra og starfsfólk.

Samhliða þessari umræðu hefur fjármálaáætlun mennta- og barnamálaráðuneytisins fyrir árin 20262030 verið kynnt, þar sem gert er ráð fyrir lækkun útgjaldaramma framhaldsskólastigsins um 2,5 milljarða króna. Þetta gerist á sama tíma og sett eru háleit markmið um efla starfsnám, bæta íslenskukennslu, styðja betur við fjölbreytta nemendahópa og fjölga útskrifuðum nemendum.

Framhaldsskólar landsins takast þegar á við sífellt flóknari verkefni. Þeir sinna fjölbreyttum nemendahópi, innleiða nýjar námsbrautir og vinna markvisst inngildingu, jöfnuði og vellíðan nemenda. Í slíku samhengi er niðurskurður ekki einfalt hagræðingarmál heldur þróun sem getur ógnað bæði gæðum náms og starfsumhverfi innan skólanna.

Við skólameistarar erum tilbúin til leiða umbætur og þróun. En það verður byggja á traustu og áreiðanlegu rekstrarumhverfi, trúnaði og gagnkvæmri virðingu. Þegar dregið er úr fjármögnun og forystufólk í skólum verður fyrir opinberum ásökunum án málsmeðferðar, sendir það röng skilaboðbæði til þeirra sem starfa innan skólanna og þeirra sem treysta þeim til verksins.

Við köllum eftir því markmið menntastefnunnar verði studd af raunhæfum fjárframlögum og yfirvegaðri umræðu.

Aðeins þannig getum við byggt framtíðarmenntun sem hvílir á fagmennsku, trausti og stöðugleikafyrir nemendur, kennara og þá framtíð sem við byggjum saman.

Höfundur er formaður Skólameistarafélags Íslands.

Nafnalisti

  • Ársæll Guðmundssonskólameistari Borgarholtsskóla
  • Inga Sælandformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 316 eindir í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,59.