Veður
Hæg suðlæg átt og væta af og til
Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir
2025-03-18 06:53
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Landsmenn mega búast við hæglætisveðri í dag, það er útlit fyrir hæga suðlæga eða breytilega átt. Væta af og til víða um land en hvergi mikil úrkoma. Það verður yfirleitt þurrt og bjart veður austanlands og hiti á bilinu 5–10 stig yfir daginn.
Á morgun verður svipað veður nema það bætir í vind vestanlands síðdegis og búast má við sunnanstrekkingi með rigningu þar annað kvöld.
RÚV/Ragnar Visage
Nafnalisti
- Ragnar Visageljósmyndari RÚV
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 71 eind í 5 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 5 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,51.