Stjórnmál

Fagna hækkun veiðigjalds

Ritstjórn mbl.is

2025-04-03 10:47

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Alls höfðu borist 65 umsagnir um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar undir kvöld í gær þegar Morgunblaðið fór í prentun. Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um stórfellda hækkun veiðigjalds hafa mætt mikilli gagnrýni en töluverður fjöldi umsagna felur í sér stuðning við áform Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra.

Sanngjörn og hugrökk nálgun! segir Finnur Sveinbjörnsson án þess hafa fleiri orð um málið. Jafn stuttorður er Erlingur Sigvaldason sem segir: Mikið framfaraskref!

Ég fagna þessu frumvarpi ráðherra og styð það. Ef útgerðarfyrirtæki eru ósátt geta þau alltaf skilað inn kvótanum fiskveiðiauðlindinni sem þjóðin á. Ég hvet þessa ríkisstjórn og þingmenn hennar til fylkja sér á bak við hæstvirtan ráðherra Hönnu Katrínu Friðriksson og fylgja þessu frumvarpi eftir, með festu og án hiks, til samþykktar svo það verði lögum, skrifar Steingrímur Dúi Másson.

Hellnaskerhugveita í sjálfbærni, kveðst styðja með öllu fyrirhugaðar breytingar á lögum um afnotagjald af auðlindinni eða svokallað veiðigjald. Breytingarnar eru ekki rothögg fyrir sjávarútveginn, heldur leiðrétting á ósanngjörnu kerfi þar sem þjóðineigandi fiskimiðannahefur aðeins fengið örlítið brot af arði sínum. stendur til tryggja auðlindaarðurinn nýtist samfélaginutil rannsókna, innviða, sjálfbærni og réttlætis.

Fjallað er um hækkun veiðigjalda í Morgunblaðinu í dag.

Nafnalisti

  • Erlingur Sigvaldasonkennaranemi
  • Finnur Sveinbjörnssonfyrrverandi bankastjóri Kaupþings og Sparisjóðabankinn
  • Hanna KatrínFriðriksson
  • Hanna Katrína
  • Steingrímur Dúi Mássonkvikmyndagerðarmaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 220 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 81,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,40.