Lýsa miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á veiðigjaldi
Ritstjórn Viðskiptablaðsins
2025-04-01 14:18
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Íslensk tæknifyrirtæki sem sérhæfa sig í nýsköpun og þjónustu fyrir sjávarútveginn hafa sent inn umsögn í samráðsgátt stjórnvalda vegna fyrirhugaðra breytinga á veiðigjöldum þar sem þau lýsa yfir miklum áhyggjum með frumvarpið sem þeir telja að geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir rekstrargrundvöll og framtíð þessara fyrirtækja.
Í umsögninni segir m.a. að á Íslandi hafi skapast verðmæt þekking og öflugt umhverfi nýsköpunar fyrir sjávarútveginn, sem hefur leitt af sér gríðarlega verðmætasköpun fyrir greinina og aukið samkeppnishæfni íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.
„Þessi fyrirtæki eru með þeim fremstu í heiminum vegna þess nána samstarfs sem félögin hafa átt við íslensk sjávarútvegsfyrirtæki, við þróun lausna, sem síðan eru seldar um allan heim og búa þá til enn meiri verðmæti í formi útflutningstekna og fjölbreyttra starfa við þjónustu og tækniþróun um allt land. Lausnir sem þessi fyrirtæki selja, eru oft dýrar fjárfestingavörur sem íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa tileinkað sér til að auka virði afurða, bæta rekstrarafkomu og samkeppnishæfni á alþjóðlegum mörkuðum.“
Vilja betri greiningu
„Í fyrsta lagi leggjum við til að stjórnvöld greini betur áhrif þessara breytinga á greinina og hver áhrif þeirra eru á verðmætasköpun, framtíðar fjárfestingaþörf og getu, og þá hver hugsanleg áhrif breytingin hefur á afleidd störf í sjávarútvegi, eins og þau fyrirtæki sem við rekum, og hver heildaráhrifin eru á skattsporið. Í öðru lagi leggjum við til að stjórnvöld vinni að tillögum að mótvægisaðgerðum sem hafa það að markmiði að efla fiskvinnslu og tækniþróun. Þetta eru þá hvatar til að fjárfesta í tæknilausum sem auka nýtingu, gæði, meðhöndlun, skilvirkni og verðmæti afla sem berst á land og takmarki þann afla sem fluttur er óunnin úr landi. Í dag nýta flest tæknifyrirtæki þær skattaívilnanir sem eru í boði fyrir þróunarverkefni, sem hafa skilað góðum árangri og eflt nýsköpun, en svona mótvægisaðgerðir væru fyrst og fremst ætlaðar að hjálpa fiskvinnslum að takast að við hækkun veiðigjalda, og koma í veg fyrir að mikilvæg þekking og störf hverfi úr landi. Við erum tilbúnir að útvega þau gögn og þá vinnu sem óskað er eftir til að farsæl lausn finnist og dýrmæt þekking í vinnslu og þróun glatist ekki úr landi.“
Undir þetta skrifa Freyr Friðriksson hjá KAPP ehf., Kristján Karl Aðalsteinsson hjá Samey Robotics, Guðmundur Hannesson hjá Kælismiðjunni Frost, Ólafur Karl Sigurðarson hjá KAPP Skaginn ehf., Gunnar Örn Sölvason hjá Micro, Páll Kristjánsson hjá Slippurinn DNG, Jóhann Bæring Gunnarsson hjá Ístækni ehf. og Trausti Árnason hjá Vélfag ehf.
Nafnalisti
- DNGframleiðslufyrirtæki
- Freyr Friðrikssoneigandi KAPP
- Guðmundur Hannessonlæknir
- Gunnar Örn Sölvason
- Jóhann Bæring Gunnarssonvéliðnfræðingur
- Kristján Karl Aðalsteinssonsölustjóri
- Microfyrirtæki
- Ólafur Karl Sigurðarsonframkvæmdastjóri Marel Fish
- Páll Kristjánssonformaður knattspyrnudeildar KR
- Samey Roboticsvel rekið félag og ört
- Trausti Árnason
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 406 eindir í 11 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 90,9%.
- Margræðnistuðull var 1,70.