EfnahagsmálViðskipti

Fjár­festar flykkjast að gulli

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-04-01 14:05

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fjárfestar leita í auknum mæli í gull sem örugga eign, á tímum vaxandi óvissu um efnahagsstefnu Bandaríkjanna.

Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs hafa fjárfestingar í gulltengdum kauphallarsjóðum (ETFexchange traded funds) náð hæstu hæðum síðan á fyrstu mánuðum heimsfaraldursins 2020.

Samkvæmt tölum frá Standard Chartered námu innstreymi fjár í slíka sjóði rúmlega 19,2 milljörðum dala, en Financial Times greinir frá

Verð á gulli náði sögulegum hæðum í dag er únsan fór í 3.148,88 dali. Það jafngildir 19% hækkun frá áramótum.

Þessi þróun endurspeglar breiðari leit svokölluðum öruggum eignum, líkt og bandarískum ríkisskuldabréfum og reiðufé, á tímum óstöðugs efnahagsástands.

Ástæðan fyrir þessari öruggu stöðutöku margra fjárfesta eru væntingar um Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hyggist tilkynna nýja víðtæka tolla á miðvikudag.

Trump hefur kallað daginn frelsisdag en margir hagfræðingar óttast tollastefnan geti dregið verulega úr alþjóðlegum hagvexti.

Óvissan í efnahagsmálum hefur verið lykilþáttur í auknum áhuga á gulli, segir Krishan Gopaul, aðalgreinandi hjá World Gold Council. Markaðurinn er greinilega í varnarstöðu.

Könnun Bank of America sýnir hlutfall reiðufjár í eignasöfnum fjárfesta, sem oft er talið merki um varfærni, jókst meira í mars en í nokkrum öðrum mánuði síðustu fimm ár. Þá hefur áhugi aukist á bandarískum ríkisskuldabréfum, sem fjárfestar nota sem skjól gegn sveiflum og vaxandi óvissu í hagkerfinu.

Ávöxtunarkrafa 10 ára bandarískra skuldabréfa hefur lækkað niður í 4,16%, nær lægsta stigi ársins, en þegar krafan hækkar lækkar virði bréfanna.

Sjá einnig]] Gullbræðslur á fullu til mæta aukinni eftirspurn í Bandaríkjunum

Ávöxtunarkrafa þýskra ríkisskuldabréfa (Bunds), sem eru talin örugg eign innan evrusvæðisins, fór tímabundið hækkandi í mars vegna væntinga um aukin útgjöld í Þýskalandi. Hún hefur þó lækkað aftur og fór undir 2,7% í gær.

Þótt seðlabankar hafi verið stærstu kaupendur gulls undanfarin ár, þá er ljóst breiðari hópur fjárfesta leitar í málminn.

Aukin eftirspurn eftir gullkauphallarsjóðum er breyting sem mest hefur borið á í gullmarkaðinum að undanförnu, segir Suki Cooper, greiningaraðili hjá Standard Chartered.

Hún bendir á væntingar um lækkandi ávöxtun annars staðar, ásamt áhyggjum af verðbólgu og minni hagvexti, hafi ýtt undir þessa þróun.

Hækkandi gullverð síðustu mánuði hefur einnig haft áhrif á spár stórra banka. Fjárfestingarbankinn Macquarie hefur hækkað verðspá sína fyrir árið í 3.500 dali á únsu.

Viðbótarmerki um ótta á mörkuðum eru aukinn innflutningur á gullstöngum til New York, þar sem birgðir á COMEX-markaðnum hafa náð sögulegu hámarki. Þó virðist það flæði vera róast.

Sjá einnig]] Gullskortur í London vegna stórfelldra flutninga til New York

Á hlutabréfamörkuðum hefur áhersla á varnarhlutabréf einnig aukist.

Hlutabréf í heilbrigðisgeiranum, sem eru talin síður viðkvæm fyrir sveiflum í hagkerfinu, hafa hækkað um 10% á síðasta mánuði. Til samanburðar hefur S & P 500-vísitalan lækkað um 5% á sama tímabili.

Nafnalisti

  • AmericaDon’ t do to me what you do to yourself
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Financial Timesbreskt dagblað
  • Krishan Gopaul
  • Macquarieástralskur fjárfestingabanki
  • Standard Charteredbreskur banki
  • Suki Cooper
  • World Gold Council

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 500 eindir í 27 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 81,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,50.