Brúnastaðir í Fljótum hlutu land­búnaðar­verð­launin 2025

Atli Ísleifsson

2025-03-20 14:26

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra afhenti í dag landbúnaðarverðlaunin fyrir árið 2025 til bændanna á Brúnastöðum í Fljótum í Skagafirði, þeim Stefaníu Hjördísi Leifsdóttur og Jóhannesi Ríkarðssyni. Verðlaunin voru afhent á Búnaðarþingi sem sett var á Hótel Nordica í Reykjavík fyrr í dag.

Á vef stjórnarráðsins segir Brúnastaðir sameini hefðbundinn íslenskan búskap við nýsköpun, matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu á einstakan hátt.

Á býlinu eru 800 vetrarfóðraðar ær og 80 geitur auk allskyns annara dýra sem eru aðalpersónur húsdýragarðsins á bænum á sumrin. Bændurnir þar eru einnig sterkir þátttakendur í samfélagslegri ábyrgð og menntun, þar sem þau hafa m.a. tekið á móti nemum frá Landbúnaðarskóla Grænlands og verið fósturforeldrar í 27 ár.

Brúnastaðir í Fljótum

Brúnastaðir hafa skapað sér sérstöðu á Íslandi með framleiðslu á geita- og sauðamjólkurvörum. Árið 2020 hófu þau handverksostagerð og urðu þar með fyrsta býlið á Íslandi til framleiða eigin geitaost. Þessi nýsköpun hefur vakið athygli bæði innanlands og erlendis og þau voru m.a. tilnefnd til Embla Nordic Food Awards árið 2022 fyrir framlag sitt til norrænnar matargerðar. Ostagerð Brúnastaða sker sig úr með áherslu á gæði, handverk og sjálfbærni, en öll framleiðsla þeirra er unnin á bænum með áherslu á náttúrulegar aðferðir og lágmarks umhverfisáhrif. Brúnastaðir leggja mikla áherslu á sjálfbæran búskap og umhverfisvernd. Þau hafa plantað yfir 70.000 trjám á 32 hektara svæði til stuðla bindingu kolefnis og bæta vistkerfi svæðisins. Þau hafa einnig verið þátttakendur í verkefninu loftslagsvænn landbúnaður.

Bændur á Brúnastöðum hafa jafnframt verið ötulir í efla tengingu milli bænda og samfélagsins. Þau bjóða reglulega upp á heimsóknir fyrir skóla, fjölskyldur og ferðamenn þar sem gestir geta fræðst um búskap, matvælaframleiðslu og íslenska náttúru. Gæludýragarðurinn á bænum er vinsæll meðal barna og fullorðinna, þar sem gestir tækifæri til komast í návígi við íslensk húsdýr og kynnast fyrirmyndar búrekstri.

Svo skemmtilega vill til foreldrar Stefaníu Hjördísar, þau Leifur Þórarinsson og Kristín Bára Ólafsdóttir, voru einnig handhafar landbúnaðarverðlaunanna árið 2001 fyrir búskap sinn í Keldudal í Hegranesi.

Verðlaunagripurinn ber heitið Biðukolla og er sérhannaður fyrir landbúnaðarverðlaunin af Matthíasi Rúnari Sigurðssyni myndhöggvara. Biðukollan er táknmynd hringrásarinnar sem er undirstaða sjálfbærs landbúnaðar. Eftir hafa blómstrað sumri dreifir biðukollan fræjum sínum um víðan völl með vindinum. Fræin eru þannig vísbending um þá möguleika og tækifæri til vaxtar sem framtíðin ber í skauti sér.

Um er ræða 24 cm grip úr bronsi sem verið er leggja lokahönd á ytra og var verðlaunahöfum afhent mynd af gripnum þangað til Biðukollan berst til landsins, segir á vef stjórnarráðsins.

Nafnalisti

  • Embla Nordic Food Awards
  • Hanna KatrínFriðriksson
  • Jóhannes Ríkarðsson
  • Kristín Bára Ólafsdóttir
  • Leifur Þórarinssonsjálfur fiðluleikari
  • Matthías Rúnar Sigurðssonmyndhöggvari
  • Stefanía Hjördís Leifsdóttirbóndi

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 433 eindir í 22 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 20 málsgreinar eða 90,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,67.