Stórá­fangi í réttinda­baráttu fatlaðs fólks

Alma Ýr Ingólfsdóttir

2025-03-20 14:16

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Við hjá ÖBÍ réttindasamtökum fögnum því innilega frumvarp um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) hafi verið lagt fyrir á Alþingi. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti fyrir frumvarpinu í þingsal í dag.

Lögfesting samningsins verður gríðarleg réttarbót fyrir fatlað fólk hér á landi og sannkallaður stóráfangi í réttindabaráttunni. ÖBÍ hefur barist fyrir lögfestingunni í 27 ár og er mikið gleðiefni sjái fyrir endann á þeirri baráttu.

Hvað er þessi samningur?

SRFF var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2006 og undirritaður af íslenskum stjórnvöldum í mars 2007. Samningurinn var svo fullgiltur hér á landi í september 2016.

Markmið samningsins er efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra og efla virðingu fyrir eðlislægri reisn þess. Þetta er fyrst og fremst jafnréttissamningur og gengur út á aðildarríki samningsins skuldbindi sig til vinna jöfnum rétti og tækifærum allra óháð fötlun.

Lesa íslenska þýðingu samningsins með því smella á þennan hlekk.

Lögfesting samningsins, sem er komin til meðferðar á Alþingi, snýst um festa ákvæði SRFF í íslensk lög. Þannig verður tryggt fatlað fólk á Íslandi geti byggt rétt sinn á samningnum með beinum hætti, til dæmis fyrir dómstólum.

Undanfarin ár hefur ÖBÍ unnið markvisst með beinum og óbeinum hætti tryggja öllu fötluðu fólki á Íslandi, óháð skerðingum, kynjum, aldri eða stöðu öðru leiti, öll þau réttindi sem felast í samningnum. Það hefur verið gert með ýmsum hætti eins og með fræðslu, fundum og bréfaskriftum til ráðamanna, umsögnum, undirskriftasöfnunum, kynningum, markaðsherferðum, alþjóðlegu samstarfi og ritun svokallaðrar skuggaskýrslu.

Og hvað svo?

Þótt lögfesting SRFF mikið framfaraskref er ekki þar með sagt með henni vinnist fullnaðarsigur í réttindabaráttu fatlaðs fólks. Enn þarf tryggja ríki og sveitarfélög uppfylli ákvæði samningsins.

Þingsályktun um landsáætlun um innleiðingu á SRFF var samþykkt á Alþingi í mars 2024 og innihélt hún 60 aðgerðir. Þetta var í fyrsta sinn sem samþykkt var heildstæð stefna í málefnum fatlaðs fólks.

Staða fatlaðs fólks í íslensku samfélagi er almennt verri en annarra, skýrar niðurstöður um það hafa birst í rannsóknum sem Varða, rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, vann fyrir ÖBÍ réttindasamtök og þá endurspeglar skýrsla um húsnæðismál fatlaðs fólks alvarlega stöðu þess í samfélaginu.

Nýlegar skýrslur Ríkisendurskoðunar og Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála varpa sömuleiðis alvarlegu ljósi á stöðu lögbundinnar þjónustu sveitarfélaga til handa fötluðu fólki, eða öllu heldur skorti á þjónustu.

Því er mikilvægt halda áfram vinnu því tryggja lögbundna þjónustu, raunverulegt jafnrétti og réttlæti fyrir fatlað fólk á Íslandi og hvetja ÖBÍ ríki og sveitarfélög vinna vel saman

ÖBÍ réttindasamstörf fagna lögfestingu SRFF og eru reiðubúin til samstarfs um tryggja Ísland uppfylli ákvæði samningsins. Ekkert um okkur án okkar.

Höfundur er formaður ÖBÍ réttindasamtaka.

Nafnalisti

  • Inga Sælandformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 493 eindir í 25 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 23 málsgreinar eða 92,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,57.