Konurnar þurfa að mæta Ís­landi á leik­vangi sem er ekki nógu góður fyrir karlana

Óskar Ófeigur Jónsson

2025-04-04 07:03

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Norska ríkisútvarpið fjallar á vef sínum sérstaklega um leikvanginn sem hýsir landsleik Íslands og Noregs í Þjóðadeild kvenna í dag.

Leikur Íslands og Noregs verður spilaður á Þróttaravelli þar sem það er verið skipta um undirlag á Laugardalsvellinum.

Leikurinn verður því spilaður á gervigrasi en nýja grasið á Laugardalsvelli verður blendigras, náttúrulegt gras styrkt með gervigrasi sem er saumað í völlinn.

Ég er ekki vön því spila á gervigrasi en ég hef spilað á gervigrasi í norsku úrvalsdeildinni. Það er mikið af gervigrasvöllum þar. Ég þekki þetta því þaðan, sagði norska landsliðskonan Ingrid Syrstad Engen við NRK.

Norska ríkisútvarpið segir frá því íslenska karlalandsliðið hafi þurft spila sinn heimaleik á Spáni vegna þess Þróttaravöllur telst ekki boðlegur fyrir karlalandsliðið.

Það er enginn vafi á því kröfurnar eigi vera þær sömu. Þannig finnst mér þetta eigi vera, sagði Engen.

NRK segir ástæðan þó ekki gervigrasið sjálft heldur áhorfendaaðstaðan, flóðljósin og fjölmiðlaaðstaðan.

NRK segir uppselt á leikinn þar sem leikvangurinn taki aðeins þúsund manns.

staðreynd við spilum bara fyrir framan þúsund manns. Ég vildi óska það væru fleiri og íslensku stelpurnar eru örugglega sammála mér. Ég hef alltaf talað fyrir því hækka standardinn á kvennafótboltanum, sagði norski landsliðsþjálfarinn Gemma Grainger við NRK.

Nafnalisti

  • Gemma Grainger
  • Ingrid Syrstad Engenleikmaður Barcelona

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 241 eind í 14 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,70.