Stjórnmál

Stjórnarmönnum skipt út á einu bretti

Ritstjórn mbl.is

2025-03-27 11:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Stjórnarskipti urðu í tveimur ríkisfyrirtækjum í vikunni þar sem stjórnarmönnum var nánast skipt út á einu bretti.

fimm manna stjórn Íslandspósts var skipuð á aðalfundi fyrirtækisins í byrjun vikunnar og í gær tók nýtt fólk við stjórnartaumum Isavia, því er Viðskiptablaðið greinir frá.

Breytingarnar tengjast líklega nýju verklagi um val á fólki til stjórnarsetu í ríkisfyrirtækjum, sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra setti í síðasta mánuði. Það á koma í veg fyrir stjórnmálatengsl innan stjórna ríkisfyrirtækja.

Tvær valnefndir voru skipaðar til meta hæfni og óhæfi þeirra einstaklinga sem gáfu kost á sér til stjórnarsetu í stærri ríkisfyrirtækjum.

Sonur Ingu Sæland úr stjórn Póstsins

Viðskiptablaðið greinir frá því í stjórn Íslandspósts hafi verið kjörin Pétur Már Halldórsson (formaður), Hrefna Kristín Jónsdóttir, Einar S. Magnússon, Rakel Heiðmarsdóttir og Sara Sigurðardóttir.

Sara var varamaður í stjórn undanfarið starfsár en henni undanskilinni eru bara andlit í stjórninni.

Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Vinstri Grænna, lætur því af störfum sem stjórnarformaður Íslandspósts. Auk þess víkur Baldvin Örn Ólason, sonur Ingu Sæland félagsmálaráðherra, úr stjórn Póstsins.

Kristján Þór úr stjórn Isavia

Í dag tók svo Steinþór Pálsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, við stjórnarformennsku Isavia en aðalfundur ríkisfyrirtækisins var haldin í dag, miðvikudag. Hann tekur þar við af Kristjáni Þór Júlíussyni, fyrrverandi ráðherra úr Sjálfstæðisflokknum.

Í raun var allri stjórn Isavia skipt út á fundinum í dag nema Mörtu Jónsdóttur, en hún tók þar sæti í ársbyrjun. Auk hennar og Steinþórs eru Gréta María Grétarsdóttir, Hera Grímsdóttir, og Ómar Svavarsson í stjórn.

Nafnalisti

  • Baldvin Örn Ólasonverkefnastjóri
  • Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Einar S. Magnússon
  • Gréta María Grétarsdóttirfyrrverandi framkvæmdastjóri Krónunnar
  • Halldóra Lóa Þorvaldsdóttiroddviti Vinstri grænna í Borgarbyggð
  • Hera Grímsdóttirframkvæmdastýra rannsókna og nýsköpunar hjá OR
  • Hrefna Kristín Jónsdóttirframkvæmdastjóri tjónasviðs hjá Verði
  • Inga Sælandformaður
  • Kristján Þórstjórnarformaður Samherja
  • Kristján Þór Júlíussonþáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
  • Marta Jónsdóttirformaður hjúkrunarráðs Landspítalans
  • Ómar Svavarssonforstjóri Securitas
  • Pétur Már Halldórssonframkvæmdastjóri Nox Medical
  • Rakel HeiðmarsdóttirRáðgjafi
  • Sara Sigurðardóttirsérfræðingur
  • Steinþór Pálssonfyrrverandi bankastjóri Landsbankans

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 255 eindir í 15 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 93,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,53.