„Enginn vinnur í viðskiptastríði“

Ritstjórn mbl.is

2025-04-03 07:59

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir 10% tollar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lagt á breskan útflutning til Bandaríkjanna muni klárlega hafa áhrif.

Trump tilkynnti í gær Bandaríkin mun setja gagntolla á þjóðir um heim allan sem eru með tolla á innflutning vara frá Bandaríkjunum, þar að auki verður 10% lágmarkstollur á allar innfluttar vörur frá Bandaríkjunum.

Starmer segir viðræður haldi áfram við stjórn Trumps og hann muni berjast fyrir bestu samningum fyrir hönd Bretlands. Hann segir enginn vinni í viðskiptastríði.

Við lifum í breyttum heimi og við verðum takast á við þessa áskorun. Ákvarðanir sem við tökum á næstu dögum og vikum verða eingöngu leiddar af þjóðarhagsmunum okkar, í þágu hagsmuna atvinnulífsins og í þágu fyrirtækja. En það er ljóst enginn vinnur í viðskiptastríði, sagði Starmer í yfirlýsingu í morgun.

Hann segir augljóslega verði efnahagsleg áhrif vegna þeirrar ákvörðunar sem Trump hefur tekið bæði fyrir Bretland og allan heiminn en ríkistjórn hans muni bregðast við þeim af yfirvegun.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Keir Starmerleiðtogi Verkamannaflokksins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 175 eindir í 8 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.