Tillaga um hertar mengunarvarnakröfur í lögsögu Íslands og 7 annarra ríkja
Innanríkisráðuneyti
2025-03-24 15:03
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Tillaga verður lögð fyrir fund Alþjóða siglingamálastofnunarinnar (IMO) nú í apríl um að skilgreina lögsögu Íslands og 7 annarra ríkja við norðanvert Atlantshaf sem sérstakt mengunarsvæði fyrir skip. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti málið á fundi ríkisstjórnar 21. mars.
Á vegum IMO er hægt að skilgreina hafsvæði þar sem strangari reglur gilda um mengunarvarnir en almennt gerist í alþjóðasiglingum. Slík svæði (Emission Control Areas, ECA) ná nú m.a. yfir Norðursjó, Eystrasalt, Miðjarðarhaf og lögsögur Noregs, Kanada og Bandaríkjanna. Svæði af þessum toga þurfa að fá samþykki innan IMO, þar sem ríki hafa almennt vald til að setja mengunarvarnareglur innan eigin landhelgi (12 mílna), en ekki í lögsögu utan landhelgi (200 mílna) eða á alþjóðlegum siglingaleiðum.
Tillagan sem tekin verður fyrir nú í apríl er um stofnun mengunarvarnasvæðis (AtlECA) sem myndi ná til lögsögu Grænlands, Færeyja, Bretlands, Írlands, Frakklands, Spánar og Portúgal, auk Íslands (sjá kort). Reglurnar varða mengun af völdum brennisteins- og köfnunarefnissambanda. Verði tillagan samþykkt á fundinum í apríl og aftur á næsta ári munu hertar reglur um mengunarvarnir taka gildi á svæðinu árið 2027.
Hertar reglur ná ekki til skipa sem eru þegar í rekstri, heldur eingöngu til nýrra stærri skipa sem koma inn í flotann á árinu 2027 eða síðar. Mjög hefur dregið úr notkun svartolíu í íslenskum skipum á undanförnum árum og þar með líka loftmengun af völdum sóts og brennisteinssambanda. Hertar kröfur um mengun af völdum köfnunarefnissambanda kalla á notkun hvarfakúta eða annarra ráðstafana í nýjum skipum sem koma inn 2027 og síðar.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Ísland hefur lengi verið framarlega meðal þjóða heims í baráttu gegn mengun hafsins. Það er ekki að ástæðulausu sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur leggur áherslu á verndun hafsvæða í stefnuyfirlýsingu sinni. Þátttaka okkar í stofnun AtlECA-svæðisins er í takti við þessa stefnu ríkisstjórnarinnar og grundvallarmál fyrir okkur sem búum hér á eyju og eigum mikið undir auðlindum sjávar. Með tilkomu svæðisins verða gerðar ríkar kröfur um mengunarvarnir í skipum í lögsögu nær allra ríkja við norðanvert Atlantshaf.“
Nafnalisti
- ECASamband knattspyrnusambanda í Evrópu
- Emission Control Areas
- IMOInternational Maritime Organization
- Jóhann Páll Jóhannssonfyrrverandi blaðamaður á Stundinni
- Kristrún Frostadóttirformaður
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 360 eindir í 15 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 93,3%.
- Margræðnistuðull var 1,70.