Sinnir ekki þingstörfum á næstunni
Silja Rún Sigurbjörnsdóttir
2025-03-24 15:12
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, mun ekki sinni þingstörfum á næstunni. Þetta kemur fram við upphaf nítjánda fundar Alþingis.
Ásthildur Lóa fékk lausn frá forseta Íslands í gær sem mennta- og barnamálaráðherra og tók Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins við.
Ásthildur sagði af sér sem ráðherra eftir að kom í ljós að þegar Ásthildur var rúmlega tvítug átti hún barn með um sautján ára pilti. Málið kom á borð forsætisráðuneytisins og lauk því svo að Ásthildur bað lausnar sem ráðherra.
Elín Íris Fanndal, varaþingmaður Flokks fólksins situr á þingi á meðan Ásthildur er frá störfum.
Guðmundur Ingi var áður þingflokksformaður flokksins en Ragnar Þór Ingólfsson tekur nú við sem þingflokksformaður.
Einnig verða mannaskipti í nefndum þingsins. Kolbrún Áslaug Baldursdóttir tekur við stöðu Guðmundar Inga í velferðarnefnd og Sigurjón Þórðarson tekur við sæti í Íslandsdeild Norðurlandaráðs.
Nafnalisti
- Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
- Elín Íris Fanndalfélagsliði
- Guðmundur Ingi Kristinssonþingmaður Flokks fólksins
- Kolbrún Áslaug Baldursdóttiroddviti Flokks fólksins
- Ragnar Þór Ingólfssonformaður
- Sigurjón Þórðarsonframkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 131 eind í 9 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 88,9%.
- Margræðnistuðull var 1,46.