Gistinóttum í febrúar fækkaði milli ára

Hugrún Hannesdóttir Diego

2025-03-31 01:54

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Gistinætur á hótelum í febrúar voru rúmlega 4,5 prósentum færri en á sama tíma á síðasta ári, samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands. Þeim fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum þar sem þeim fjölgaði um 16,6 prósent.

Fækkun gistinótta á höfuðborgarsvæðinu var 6,7 prósent en mesta fækkunin var 23,2 prósent á Austurlandi. Framboð hótelherbergja jókst þó lítillega á nær öllu landinu nema á höfuðborgarsvæðinu. Framboð á Austurlandi dróst hins vegar saman um rúmlega 24 prósent.

Ferðamenn í miðborg Reykjavíkur. Mynd er úr safni. RÚV/Ragnar Visage

Nafnalisti

  • Hagstofu Íslandsárið 2015
  • Ragnar Visageljósmyndari RÚV

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 84 eindir í 8 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,78.