Skjálftavirkni á um 20 kílómetra löngu svæði

Ritstjórn mbl.is

2025-04-01 22:14

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Af vefmyndavélum dæma er lítil gosvirkni sjá á sprungunni sem opnaðist í morgun rétt norður af Grindavík. Aðeins sjá litla góð hér og þar á gossprungunni og í hraunbreiðunni.

Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir áfram mælist skjálftavirkni og aflögun vegna kvikuhreyfinga á norðausturenda kvikugangsins sem myndaðist í dag. Skjálftavirkni hefur mælst á um 20 kílómetra löngu svæði, mælt frá suðurenda gossprungunnar þeim stað þar sem skjálftavirknin er mest núna.

Skjálftavirknin er enn á talsverðu dýpi og eru engin merki um kvikan sem er á ferðinni leita til yfirborðs.

15 milljónir rúmmetrar skilað sér til yfirborðs

Samkvæmt líkanreikningum síðdegis í dag var áætlað um 15 milljónir rúmmetra af kvikumagni hefðu skilað sér til yfirborðs. Áður en gos hófst höfðu um 22 milljónir rúmmetra bæst við kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi frá síðasta eldgosi og því er mögulegt enn innistæða fyrir frekari kvikuhreyfingum, segir í tilkynningunni.

Segir þar jafnframt meðan áfram mælist jarðskjálftavirkni og aflögun í kvikuinnganginum sem myndaðist í dag þurfi reikna með því gossprunga geti opnast. Talið er líklegt opnun yrði þar sem skjálftavirknin er mest núna.

Ef til gosopnunar kæmi reikna með því fylgi talsverð skjálftavirkni sem íbúar í Vogum yrðu varir við.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 222 eindir í 11 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 90,9%.
    • Margræðnistuðull var 1,71.