Stjórnmál

Sam­fylkingin mælist með 27 pró­senta fylgi

Atli Ísleifsson

2025-04-02 08:42

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Samfylkingin mælist stærsti stjórnmálaflokkurinn í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup þar sem 27 prósent aðspurðra segjast myndu kjósa flokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag. Sjálfstæðisflokkurinn mælist næststærstur með 22 prósenta fylgi.

Litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mælinga Gallups og ekki tölfræðilega marktækar.

Samkvæmt könnuninni segjast 15 prósent myndu kjósa Viðreisn, rúmlega níu prósent Miðflokkinn, nær átta prósent Flokk fólksins, næstum sex prósent Framsóknarflokkinn, rösklega fimm prósent Sósíalistaflokkinn, fjögur prósent Pírata, ríflega þrjú prósent Vinstri græn og tæplega eitt prósent aðra flokka.

Fylgi Flokks fólksins mældist 6,9% fyrir afsögn Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra, en 8,8% eftir hana. Liðlega 5% myndu skila auðu eða ekki kjósa og næstum 12% taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Um 66% þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina, segir í tilkynningu frá Gallup.

Liðlega fimm prósent myndu skila auðu eða ekki kjósa og næstum 12 prósent taka ekki afstöðu eða vilja ekki gefa hana upp. Um 66 prósent þeirra sem taka afstöðu styðja ríkisstjórnina.

Um var ræða netkönnun sem Gallup gerði dagana 3. til 31. mars 2025. Heildarúrtaksstærð var 10.324 og þátttökuhlutfall var 47,5 prósent.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Heildarúrtaksstærð3.508 manns 18 ára eða eldri
  • Vinstri græneinfaldlega þannig flokkur sem segir

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 187 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,70.