Viðskipti

Fjölgun starfa undir væntingum

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-03-07 14:59

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Störfum í Bandaríkjunum fjölgaði um 151 þúsund í febrúar, samkvæmt bandarísku vinnumálastofnuninni. Mun það vera nokkuð minna en spár gerðu ráð fyrir en áætlað var störfum hefði fjölgað um 160 þúsund.

Atvinnuleysi mældist 4,1 prósent í febrúar, en greinendur höfðu gert ráð fyrir 4% atvinnuleysi. Fjöldi opinberra starfa dróst saman um 10 þúsund í febrúar, sem gætu verið fyrstu merki um áhrif DOGE-verkefnis Elon Musk sem snýr í stutu máli því fækka opinberum störfum.

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær hann hefði frestað álagningu tolla á vörur frá Kanada og Mexíkó til 2. apríl. Því verði áfram unnið eftir USMCA (United States-Mexico-Canada Agreement) fríverslunarsamningnum.

Þá hafa embættismenn innan Hvíta hússins gefið í skyn frestunin gæti varað enn lengur ef Kanada og Mexíkó tekst draga úr smygli á fentanýli til Bandaríkjanna. 20% tollar á vörur frá Kína eru þó enn í gildi.

Sjá einnig]] Frestar tollum á vörur frá Kanada og Mexíkó

Trump tilkynnti um nýja tolla á vörur frá Kanada, Mexíkó og Kína á mánudaginn sl. Tollarnir tóku gildi daginn eftir, 4. mars.

Í kjölfarið lækkuðu hlutabréf í verði víðs vegar um heiminn. Bandarískir hlutabréfamarkaðir tóku verulega við sér eftir forsetakosningarnar en hækkanir síðustu fjögurra mánaða hafa þurrkast út.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Elon Muskforstjóri
  • United States-Mexico-Canada Agreementnafn

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 213 eindir í 13 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 84,6%.
  • Margræðnistuðull var 1,66.