Stjórnmál

Inga: Ekki skipt um skoðun og engin hrossakaup

Ritstjórn mbl.is

2025-03-20 11:40

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir Flokkur fólksins hafi ekki skipt um skoðun hvað varðar afstöðu flokksins til sölunnar á Íslandsbanka. Þá vísar Inga því á bug flokkurinn hefði ákveðið standa ekki í vegi fyrir sölu á Íslandsbanka gegn því Landsbankinn yrði gerður samfélagsbanka.

Þetta kom fram í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Þar gerði Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, afstöðu Flokks fólksins til sölu Íslandsbanka umtalsefni.

Skörp U-beygja

Til stendur klára sölu á bankanum, söluferli sem Sjálfstæðisflokkurinn setti af stað. Ég fagna því að sjálfsögðu. Það sem vakti samt hvað mesta athygli var skörp U-beygja Flokks fólksins í málinu. Flokkurinn hefur áður vaðið á súðum í umræðunni um fyrri söluferli og sjaldan sparað stóru orðin í því samhengi. Hæstvirtur félags- og húsnæðismálaráðherra hefur farið þar fremst í flokki eins og oft áður, sagði Guðrún.

Fór hún fyrir nefndaráliti hér í þessum sal um vísa ætti frumvarpi um sölu á bankanum frá. Þá voru orð á borð við þessi látin falla: á höggva höfuðið af gullgæsinni og setja hana á grillið. Loks var það meðal kosningaloforða flokksins í nóvember síðastliðnum flokkurinn væri alfarið andsnúinn sölu á Íslandsbanka. En hefur allt breyst. Háttvirtur þingmaður er orðinn hæstvirtur ráðherra. Kosningaloforðið og fyrri sannfæring virðast jafnframt farin fyrir . Batnandi mönnum er þó best lifa, frú forseti, og það vakna því spurningar um hvað búi hér nákvæmlega baki.

Ekki ástæða til höggva höfuðið af gullgæsinni

Inga sagði Flokkur fólksins hefði ekki skipt um skoðun.

Við töldum ekki væri ástæða til þess, á meðan bankarnir okkar mala gull og hafa verið skila miklum arði inn í samfélagið, eins og háttvirtur þingmaður bendir á, höggva höfuðið af gullgæsinni og skella henni á grillið. Við fengum hins vegar ágætisarf, ekki bara þennan kaleik heldur ýmislegt annað, í fangið frá fráfarandi ríkisstjórn. Sumt af því er gott og við höfum gert það okkar og við ætlum halda áfram fylgja eftir þeim góðu málum sem fráfarandi ríkisstjórn skilur eftir sig og viðurkenna það sem vel er gert, sagði Inga.

Hún bætti við það hefði aldrei komið til tals í núverandi ríkisstjórn ýfa upp fjárlögin eða eitt eða neitt slíkt til gjörbreyta öllum forsendum. Hins vegar eru gleðifréttirnar þær þessi sala mun verða til fyrirmyndar eins og hægt er, allt opið, allt uppi á borðum, engin mistök og það þarf enginn segja af sér eftir hana, sagði Inga.

Samið á bak við tjöldin?

Guðrún gerði síðan stöðu Landsbankans umræðuefni þegar hún benti á Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, hefði staðið vaktina í umræðunni um sölu á Íslandsbanka fyrir hönd flokksins í vikunni.

Hann mætti þó reyndar ekki til leiks fyrr en háttvirtur þingmaður Bryndís Haraldsdóttir kallaði eftir þátttöku Flokks fólksins í umræðunni og þau hafa hingað til ekki talið eftir sér ræða sölu á Íslandsbanka. En af orðum talsmanns Flokks fólksins mátti þó greina Landsbankinn ætti svo verða samfélagsbanki, eitthvað sem hefur verið í stefnuyfirlýsingu Flokks fólksins varðandi Landsbanka Íslands og flokkurinn hefur lengi talað fyrir. Það er því ekki hægt annað en spyrja hæstvirtan ráðherra hvort þetta einmitt það sem Flokkur fólksins fékk í gegn í stjórnarsamstarfinu, þ.e. standa ekki í vegi fyrir sölu á Íslandsbanka gegn því Landsbankinn yrði gerður samfélagsbanka, sagði Guðrún.

Veit gleður hana alls ekki

Ég vildi satt væri. Ég vildi við hefðum verið gera einhver slík hrossakaup, með því segja við þessu fengjum við líka við þeirri hugsjón Flokks fólksins Landsbankinn yrði gerður samfélagsbanka. Ég get hins vegar glatt háttvirtan þingmann með því, sem ég veit gleður hana alls ekki, það er algerlega skýrt á borðinu, og var ákveðið af þessari ríkisstjórn, ekki verður ráðist í neitt söluferli á Landsbankanum á þessu kjörtímabili. , Flokkur fólksins á stóran þátt og heiður af því ekki verður ráðist í sölu á Landsbankanum á þessu kjörtímabili. En hvort okkur auðnast gifta gera hann samfélagsbanka verður tíminn bara leiða í ljós. En ég vona svo sannarlega svo geti orðið, háttvirtur þingmaður Guðrún Hafsteinsdóttir, sagði ráðherra lokum.

Nafnalisti

  • Bryndís Haraldsdóttirþingmaður Sjálfstæðisflokksins
  • Guðrún Hafsteinsdóttirfyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins
  • Háttvirtur þingmaðurraforkuöryggi
  • Inga Sælandformaður
  • Sigurjón Þórðarsonframkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra
  • U-beygjaeng

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 766 eindir í 36 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 30 málsgreinar eða 83,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.