Íþróttir

Sex breytingar á byrjunar­liðinu

Ingvi Þór Sæmundsson

2025-03-23 15:57

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, gerir sex breytingar á byrjunarliðinu fyrir seinni leikinn gegn Kósovó í umspili um sæti í B-deild Þjóðadeildarinnar í dag. Tveir Skagamenn sem spila vanalega á miðjunni eru í vörninni.

Ísland tapaði 21 fyrir Kósovó í Pristína á fimmtudaginn. Aðeins fimm leikmenn sem byrjuðu þann leik byrja leikinn í Murcia í dag. Þetta eru þeir Hákon Rafn Valdimarsson, Sverrir Ingi Ingason, Ísak Bergmann Jóhannesson, Orri Steinn Óskarsson og Albert Guðmundsson.

Valgeir Lunddal Friðriksson, Stefán Teitur Þórðarson, Willum Þór Willumsson, Arnór Ingvi Traustason, Þórir Jóhann Helgason og Jón Dagur Þorsteinsson koma inn í byrjunarliðið. Aron Einar Gunnarsson, Guðlaugur Victor Pálsson, Logi Tómasson, Mikael Egill Ellertsson, Hákon Arnar Haraldsson og Andri Lucas Guðjohnsen setjast á bekkinn. Hákon glímir við meiðsli.

Gera ráð fyrir því Stefán Teitur verði miðvörður við hlið Sverris og Valgeir og Ísak bakverðir. síðastnefndi mun þó eflaust eitthvað frjálsræði þegar Íslendingar eru með boltann. Ísak á afmæli í dag en hann er 22 ára. Hann leikur sinn 33. landsleik.

Willum og Jón Dagur eru á köntunum og Arnór Ingvi og Þórir á miðjunni. Fremstir eru svo fyrirliðinn Orri, sem skoraði mark Íslands í fyrri leiknum, og Albert.

Byrjunarlið Íslands

Markvörður: Hákon Rafn Valdimarsson

Hægri bakvörður: Valgeir Lunddal Friðriksson

Miðverðir: Sverrir Ingi Ingason og Stefán Teitur Þórðarson

Vinstri bakvörður: Ísak Bergmann Jóhannesson

Hægri kantmaður: Willum Þór Willumsson

Miðjumenn: Arnór Ingvi Traustason og Þórir Jóhann Helgason

Vinstri kantmaður: Jón Dagur Þorsteinsson

Framherjar: Orri Steinn Óskarsson (fyrirliði) og Albert Guðmundsson

Leikur Íslands og Kósovó hefst klukkan 17:00 og verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 16:25.

Nafnalisti

  • Albert Guðmundssonleikmaður AZ Alkmaar og íslenska landsliðsins
  • Andri Lucas GuðjohnsenÍslendingur
  • Arnar Gunnlaugssonþjálfari
  • Arnór Ingvi Traustasonlandsliðsmaður
  • Aron Einar GunnarssonFyrirliði
  • B-deild1. sæti
  • Guðlaugur Victor Pálssonlandsliðsmaður
  • Hákon Arnar Haraldssonlandsliðsmaður
  • Hákon Rafn Valdimarssonlandsliðsmarkvörður
  • Ísak Bergmann Jóhannessoníslenskur landsliðsmaður
  • Jón Dagur Þorsteinssonlandsliðsmaður
  • Logi Tómassonleikmaður Víkings
  • Mikael Egill Ellertssonleikmaður Spezia
  • Orri Steinn Óskarssonframherji
  • Pristínahöfuðborg
  • Stefán Teitur ÞórðarsonSkagamaður
  • Stöð 2 Sporthluti af Sportpakkanum
  • Sverrir Ingi Ingasonlandsliðsmaður
  • Valgeir Lunddal Friðrikssonbakvörður
  • Willum Þór Willumssonmiðjumaður
  • Þórir Jóhann Helgasonlandsliðsmaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 253 eindir í 25 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 23 málsgreinar eða 92,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,55.