Orkuveitan vill reisa fimm­tán vind­myllur

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir

2025-03-31 22:50

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Orkuveitan hyggst byggja vindorkugarð við Dyraveg á Mosfellsheiði. Gert er ráð fyrir fimmtán vindmyllum í vindorkugarðinum en þarf samt sem áður fyrst ýmis leyfi og ljúka þarf lögbundnu ferli.

Þrjú svæði í nágrenni Hellisheiðar- og Nesjavallavirkjunar hafi komið til greina og leiddi greining í ljós Dyravegur henti vel. Staðsetningin nálægt dreifikerfi og starfssvæði Orkuveitunnar og nálægt röskuðu svæði. Þá þarf lágmarka áhrif á umhverfi, náttúru og dýralíf en einnig sjónræn áhrif við mikilvæg náttúru-, ferðamanna- og útivistarsvæði. Dyravegurinn uppfylli öll þessi skilyrði. Enn er verið skoða hin tvö svæðin en er greining svæðanna skemur á veg komin.

Gert er ráð fyrir fjöldi vindmyllanna verði allt fimmtán og þær verði á milli 160 og 210 metrar á hæð.

Ákvörðunin hefur ekki verið tekin heldur þarf fyrst klára lögbundið ferli í samræmi við lög um rammaáætlun og samþykkta þingaályktunartillögu um rammaáætlun frá Alþingi. Framkvæmdin er þá háð mörgum leyfum, svo sem virkjunarleyfi, framkvæmdaleyfi frá Sveitarfélaginu Ölfusi, starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti og Heilbrigðisnefnd Suðurlands, leyfi Minjastofnunar Íslands og Samgöngustofu.

Hér sjá matsáætlun Orkuveitunnar í heild sinni. Almenningur getur sent inn athugasemdir í gegnum skipulagsgátt.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 198 eindir í 12 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 100,0%.
    • Margræðnistuðull var 1,70.