Stjórnmál

Pólitískir and­stæðingar hafi gusað út úr sér and­styggi­legum ó­hróðri

Jón Ísak Ragnarsson

2025-03-21 19:21

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður og fjölmiðlamaður, kveðst býsna hugsi yfir því hvernig sumt fólk hefur tekið fram heykvíslarnar og grjótið gagnvart Ásthildi Lóu Þórsdóttur. Hann segir pólitíska andstæðinga hennar hafa gusað út úr sér andstyggilegan óhróðri og skemmt sér með meinfýsnum og ósmekklegum orðaleikjum.

Í færslu á samfélagsmiðlum segir Páll fordæmingarnar og formælingarnar hafi keyrt úr öllu hófu áður en Ásthildur sagði sína hlið á málinu.

Ég hvet fólk til lesa því er virðist einlæga og opinskáa greinargerð Ásthildar Lóu áður en það fellir dóma í málinu. ég tali ekki um áður en það dregur fram heykvíslarnar og grjótið, segir Páll.

Ásthildur Lóa gaf frá sér langa yfirlýsingu í morgun þar sem hún hafnaði því meðal annars hafa verið leiðbeinandi drengsins á sínum tíma. Hún sagði drengurinn hefði sótt mjög í hana og hún heðfi upplifað eitthvað sem í dag væri kallað eltihrelling.

Þá hafnaði hún jafnframt öllum ásökunum um tálmun.

Sambandið óheilbrigt en ekki glæpsamlegt

Páll segir í yfirlýsingu Ásthildar hafi komið fram hún hefði ekki verið umsjónar- eða tilsjónarmaður piltsins, heldur í svipaðri stöðu og hann í trúarsöfnuðinum Trú og líf.

Úr varð, því er virðist, frekar óheilbrigt ástarsamband en fráleitt glæpsamlegt. Og meðal annarra orða: hefðu fordæmingarnar núna orðið jafn harðvítugar ef um hefði verið ræða 22 ja ára gamlan strák og 16 ára stelpu?

Höfum líka í huga það sem fjölmiðlar hafa haft eftir drengnum: hann leit aldrei á sig sem fórnarlamb í þessu samhengi-og þessi umfjöllun núna er ekki hans ráði eða frumkvæði.

Í morgun hafði Vísir eftir Eiríki Ásmundssyni, barnsföður Ásthildar, málið væri komið upp í hans óþökk. Erindi fyrrverandi tengdamóður hans til forsætisráðuneytisins hefði verið án hans vitneskju.

Í öðru viðtali við RÚV skömmu seinna áréttaði Eiríkur hins vegar hann væri ekki mótfallinn þessari umræðu, og hann væri þakklátur fyrrverandi tengdamóður sinni hafa komið málinu af stað. Hann sagði ummælin á Vísi gæfu ekki rétta mynd af því hvað honum fyndist um málið.

Undir lok pistils Páls Magnússonar segir hann það verði pólitískum andstæðingum hennar ekki til framdráttar skemmta sér með meinfýsnum orðaleikumm um börn, barnanir og barnamálaráðherra.

Af öllum óhróðrinum sem sumir hafa gusað út úr sér í þessu máli er hann einna andstyggilegastur frá þeim sem halda sig geta grætt eitthvað pólitískt á þessari 35 ára gömlu sögu ungmennanna, sem þá voru. Þeirra sem skemmta sér núna með meinfýsnum og ósmekklegum orðaleikjum um börn, barnanir og barnamálaráðherra.

Við þau vil ég segja: gangið hægt um þessar Þórðargleðinnar dyr, finnið ykkur önnur mál; þetta verður ykkur ekki til framdráttar. Kannski er það líka svo sumir þeirra sem gengu fyrst og harðast fram í fordæmingunni standa ekki á þeim siðferðislega fjallstindi sjálfir þeim fari vel kasta fyrsta steininum. Frelsarinn kenndi okkur hver ætti gera það: yðar sem syndlaus er.

Færsla Páls.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Eiríkur Ásmundsson
  • Páll Magnússonfyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 524 eindir í 24 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 70,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,58.