Stjórnmál

Skraut­legir fyrstu mánuðir hjá Flokki fólksins

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir

2025-03-21 19:01

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Mikið hefur gustað um Flokk fólksins á fyrstu þremur mánuðum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Aðeins vika er síðan fráfarandi mennta- og barnamálaráðherra baðst afsökunar á ummælum um íslenska dómstóla.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var skipuð 22. desember síðastliðinn. Segja fyrsti mánuðurinn hafi verið nokkuð rólegur en það var áður en nýtt þing kom saman sem fyrsta hneykslismál Flokks fólksins reið yfir.

Það var 21. janúar sem greint var frá því flokkurinn hefði þegið 240 milljónir króna í styrki úr ríkissjóði þrátt fyrir hafa ekki uppfyllt skilyrði. Morgunblaðið greindi fyrst frá málinu og gekk hvað harðast fram.

Það vakti hörð viðbrögð hjá flokknum. Inga Sæland, formaðurinn sagði daginn eftir blaðið væri óvandaður falsfréttamiðill í eigu auðmanna og ákveðinna stjórnmálaafla. Tveimur vikum síðar lagði Sigurjón Þórðarson, þingmaður flokksins, það til ríkisstyrkir til Morgunblaðsins yrðu endurskoðaðir vegna umfjöllunarinnar.

Sem lyktar óneitanlega af hrútspungafýlunni sem flæðir úr Hádegismóum. Það er alveg með ólíkindum dylgjurnar sem hér eru settar fram. Það er með hreinum ólíkindum þurfa sitja undir svona dylgjum, sagði Inga í ræðustóli á Alþingi 20. febrúar.

Og það var engin lognmolla. 27. janúar birtist frétt á Vísi um Inga hefði hringt í skólastjóra Borgarholtsskóla og meðal annars sagst hafa ítök í lögreglunni. Barnabarn Ingu nemur við skóna og hafði glatað Nike-skóm á göngum skólans. Skórnir höfðu verið teknir í misgripum og var skilað.

Og ég biðst bara afsökunar á því í rauninni hafa tekið, hvað á ég segja, þessa hvatvísu ákvörðun. Hvatvísin hefur reynst mér mjög vel til þessa og komið mér þangað sem ég er í dag.

Undir lok febrúarmánaðar birtust svo fréttir af því VR hefði greitt Ragnari Þór Ingólfssyni rúmar tíu milljónir króna þegar hann lét af embætti formanns til taka sæti á þingi. Ragnar sagði biðlaunin færi beint í neyðarsjóð fjölskyldunnar. Aðrir verkalýðsforingjar, til dæmis Sólveig Anna Jónsdóttir í Eflingu, hneyksluðust á málinu.

Það var svo í síðustu viku sem héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ríkinu í vil í bótamáli Ásthildar Lóu vegna meintra mistaka fulltrúa sýslumanns eftir uppboð á heimili hennar árið 2017. Eftir dómurinn féll sagði Ásthildur Lóa á Facebook hún væri löngu hætt gera ráð fyrir réttlæti hjá íslenskum dómstólum.

Eins og ég segi get ég alveg gert það núna, beðist afsökunar á þessum ummælum. Vegna þess ég get ekki fullyrt svona um dómstólana yfir allt, sagði Ásthildur Lóa eftir ríkisstjórnarfund fyrir viku síðan.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóaformaður Hagsmunasamtaka heimilanna og Ragnar Þór formaður VR
  • Facebookbandarískur samfélagsmiðill
  • Inga Sælandformaður
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Ragnar Þór Ingólfssonformaður
  • Sigurjón Þórðarsonframkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra
  • Sólveig Anna Jónsdóttirfyrrverandi formaður Eflingar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 419 eindir í 25 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 88,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.