Sæki samantekt...
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, hefur þegið boð um ríkisheimsóknir til Noregs og Svíþjóðar í vor. Markmið beggja heimsókna er að styrkja enn frekar söguleg tengsl þjóðanna og vinna að sameiginlegum hagsmunum.
Þetta segir í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands.
Horft til sameiginlegrar menningarsögu þjóðanna
Segir þar enn fremur að hefð sé fyrir því að norrænir þjóðhöfðingjar fari sínar fyrstu ríkisheimsóknir eftir embættistöku milli Norðurlanda enda sé náið samstarf meðal þjóðanna.
Hafa Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning boðið Höllu og eiginmanni hennar, Birni Skúlassyni, til heimsóknar dagana 8.–10. apríl þar sem farið verður bæði til Óslóar og Þrándheims og mun Hákon krónprins fylgja forsetahjónunum þangað.
Verður þar horft til sameiginlegrar menningarsögu þjóðanna með áherslu á bókmenntir en auk þess verða skoðuð tækifæri til aukins samstarfs, bæði í græna hagkerfinu sem og bláa hagkerfinu, þ.e. á sviði orkumála og sjávarútvegs.
Þá verða öryggis- og varnarmál til umræðu en einnig verður lögð áhersla á leiðir til að stuðla að bættri andlegri heilsu í samfélaginu.
Dýpka samskipti á sviði skapandi greina
Karl Gústaf Svíakonungur og Silvía drottning hafa svo boðið forsetahjónunum til Stokkhólms dagana 6.–8. maí.
Þar verða m.a. skoðuð tækifæri til frekara samstarfs á sviði líftækni og heilbrigðisþjónustu. Einnig verður litið til þess að dýpka samskipti þjóðanna á sviði skapandi greina með áherslu á sjónvarps- og kvikmyndagerð.
Sömuleiðis verða öryggis- og varnarmál til umræðu, þá einkum með hliðsjón af nýlegri aðild Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu og viðnámsþoli þjóðanna andspænis fjölþáttaógnun.
Þá mun opinber sendinefnd fylgja forsetahjónunum en auk þess verða með í för viðskiptasendinefndir á vegum Íslandsstofu.
Nánar verður greint frá dagskrá heimsóknanna þegar nær dregur.
Nafnalisti
- Björn Skúlassyni
- Hákonsonur Bjarna Gíslasonar, pr. á Söndum í Dýrafirði, og k.h., Helgu Árnadóttur húsfreyju
- Halla Tómasdóttirfyrrverandi forsetaframbjóðandi
- Haraldur Noregskonungurkonungur
- Karl Gústaf Svíakonungur
- Silvíakonungshjónanna
- Sonjaeinkahlutafélag
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 271 eind í 15 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 93,3%.
- Margræðnistuðull var 1,53.