Stjórnmál

Kallar eftir kjark­miklum og óttalausum for­ystu­manni

Magnús Jochum Pálsson

2025-03-13 11:15

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, segir ekkert hafa heyrst frá sitjandi formanni, Sigurði Inga Jóhannessyni, um alvarlega stöðu flokksins. Ekki lengur bara best kjósa Framsóknarflokkinn og skorar hann á forystuna bretta upp ermar.

Þetta kemur fram í skoðanagreininni Ákall um endurreisn Framsóknarflokksins sem Guðni skrifar í Morgunblaðinu í dag þar sem hann kallar eftir aðgerðum og skipun framtíðarnefndar.

Í greininni segir Guðni í 109 ára farsælli sögu Framsóknarflokksins hafi hann hlotið sína verstu kosningu 30. nóvember síðastliðinn og staddur á svipuðum slóðum og Samfylkingin árið 2016.

Flokkurinn byggi á grundvallarstefnuskrá og í honum séu tólf þúsund félagsmenn sem trúi á hana af einlægni. Ætla mörgum þeirra líði ekki vel þessa dagana. Ég er einn þeirra, skrifar Guðni.

Ekkert markvert hefur heyrst frá formanni flokksins um þá alvarlegu stöðu sem upp er komin í Framsóknarflokknum. Hvorki meira minna en átta þingmenn féllu, þar af þrír öflugir ráðherrar, varaformaður og ritari flokksins, skrifar hann síðan.

Flokkurinn hafi aðeins náð fimm fulltrúum inn á þing og formaður flokksins og annar þingmaður til á landsbyggðinni hafi náð kjöri á sjö þúsund atkvæðum af höfuðborgarsvæðinu sem féllu dauð niður þar.

Ferskir vindar blási um salarkynni annarra

Guðni rekur síðan eyðimerkurgöngu Samfylkingarinnar í fernum kosningum frá 2013 til 2021 þar til Kristrún Frostadóttir kom til sögunnar. Margir spyrji sig hvort Framsóknarflokkurinn hefja álíka gönguför og ekki síður hvernig hún endi.

Fyrir farsæl sögulok er nauðsynlegt gjöful vin finnist í eyðimörkinni. því vatnsbóli þarf flokkurinn allur leita, skrifar Guðni.

Hann segir Samfylkinguna hafi búið við niðurlægingu sína þrátt fyrir vera eini flokkur jafnaðarmanna. Framsóknarflokkurinn búi hins vegar við harða samkeppni þar sem flokkar sæki miðjunni, mið-hægrinu og mið-vinstrinu.

Bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn búa við klofningsflokkana Viðreisn og Miðflokkinn, sem vissulega torveldar báðum endurreisn sína. Af átta þingmönnum Miðflokksins eru fjórir, jafnvel fjórir og hálfur, fyrrverandi framsóknarmenn, skrifar Guðni. Flokki fólksins hafi svo tekist hirða ákveðinn kjarna landsbyggðar- og félagshyggjufólks af Framsókn.

Guðni segir Sjálfstæðisflokkinn hafa haldið glæsilegan landsfund og kosið sér nýja forystu.

Kenningin um nýir vendir sópi best hefur rækilega sannast hjá Samfylkingunni. Ekki kæmi á óvart svipað yrði uppi á teningnum hjá Sjálfstæðisflokknum. Hjá báðum flokkunum blása ferskir vindar um salarkynnin, skrifar Guðni.

Óhamingju Framsóknarfólks orðið flest vopni

Hvað stendur til gera? Til hvaða ráða skal gripið? spyr Guðni því forystu Framsóknarflokksins, og beinir spurningunum sérstaklega til formannsins. Það er nefnilega ekki lengur bara best kjósa Framsóknarflokkinn. , bætir hann við.

Sigurður Ingi og Lilja Dögg hafi tekið við keflinu þegar Sigmundur Davíð klauf flokkinn. Þau hafi unnu góðan varnarsigur árið 2017 og glæsta sigra í alþingiskosningum 2021 og sveitarstjórnarkosningum 2022. Framsókn hafi verið næststærsti sveitarstjórnarflokkur landsins eftir þær kosningar.

Flokkurinn hafi komist í meirihluta í Reykjavík en það reynst vera vondur félagsskapur. Borgarstjórinn, sem var nýtekinn við keflinu, hafi séð sér þann kost vænstan rjúfa samstarfið.

Endirinn á þeirri vegferð varð Framsóknarflokkurinn situr ekki einungis í minnihluta heldur þarf hann til viðbótar kljást við versta borgarstjórnarmeirihluta Reykjavíkur. Óhamingju okkar framsóknarfólks hefur orðið flest vopni síðustu misserin, skrifar Guðni.

Beinlínis skylda formannsins skipa framtíðarnefnd

Guðni segir þegar fyrirtæki eða félög fari illa eigi allir haghafar og félagsmenn rétt á skýringum um hvað hafai valdið fallinu og ekki síður hvernig fyrirhugað endurreisa starfsemina. Það þoli enga bið greina ástæður fylgistapsins og teikna upp öfluga endurkomu með stofnun framtíðarnefndar.

Nauðsynlegt snúa öllum steinum við í þeirri vinnu og í vinningsliðinu verði manna hverja stöðu af kostgæfni.

Svo gripið til fótboltamáls þarf sóknarlínan nærast á hungrinu eftir mörkum, miðjan hafa úthald í endalausa vinnu og vörnin hafa í farteskinu svo mikla reynslu engar óvæntar stöður komi henni í opna skjöldu, skrifar Guðni.

Það er beinlínis skylda þín, Sigurður Ingi, sem formaður Framsóknarflokksins skipa framtíðarnefnd um endurreisn flokksins í góðu samráði og sátt við varaformann og ritara hans. Þið þrjú eruð réttkjörin stjórnveli Framsóknarflokksins og fyrir nefndina sem þið setjið á laggirnar er mikilvægt hafa fullt traust og gott veganesti frá ykkur öllum, skrifar hann einnig.

Þingflokkurinn muni vonandi hafa gagnleg innlegg í vinnu slíkrar nefndar. Hópurinn megi hafa hugfasta hina gömlu og góðu brýningu: Ef sverð þitt er stutt gakktu þá feti framar.

Verkefni framtíðarnefndar verði sögn Guðna skilgreina stöðuna af hreinskiptni og kortleggja af nákvæmni hvernig nýta megi lykilatriðin sem undirstöður nýrra sóknarfæra.

Tíminn til stefnu naumur og ætti nefndin því kynna vinnu sína á haustfundi miðstjórnar síðar á þessu ári. Í kjölfarið gæti flokksþing ársins 2026 tekið tillögurnar til umræðu og afgreiðslu.

Skorar á forystuna horfast í augu við ískaldan veruleikann

Hér dugar engin tæpitunga. Þessi nefnd þarf kjarkmikinn forystumann sem gæti óttalaus talað fyrir greinargóðu handriti þróttmikilli þátttöku Framsóknarflokksins í íslenskum stjórnmálum til langrar framtíðar, skrifar Guðni.

Hann þykist vita Sigurður Ingi stefni ekki endilega því leiða Framsóknarflokkinn í næstu kosningum en segist líka sannfærður um hann vilji koma flokknum af líknardeildinni áður en til þeirra verður efnt.

Þess vegna er okkur ekki til setunnar boðið. Seinna gæti orðið of seint. Það er minnsta kosti lágmark tólf þúsund félagar í Framsóknarflokknum viti hvort flokkurinn þeirra koma eða fara. Þess vegna skora ég á þríeykið í æðstu forystu Framsóknarflokksins bretta upp ermar, horfast í augu við okkar ískalda veruleika, taka til máls og grípa til aðgerða, skrifar hann lokum.

Nafnalisti

  • Guðni Ágústssonfyrrverandi ráðherra
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Lilja Döggvaraformaður Framsóknarflokksins
  • Sigmundur Davíðformaður Miðflokksins
  • Sigurður Ingi Jóhannessonformaður Framsóknarflokksins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 1011 eind í 56 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 48 málsgreinar eða 85,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,50.