Heilsa og lífsstíll

Gæti útskýrt óþefinn og óbragðið

Ritstjórn mbl.is

2025-03-31 22:40

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Borun nýrrar neysluvatnsborholu við Hveragerði gæti skýrt þann óþef og óbragð sem Hvergerðingar hafa fundið af vatninu undanfarna daga.

Í tilkynningu á vef bæjarins segir borunin hafi hugsanlega komið hreyfingu á jarðveg sem orsakaði skert gæði neysluvatnsins. Niðurstöður úr sýnatökum sem bárust fyrir helgi benda til lyktar- og bragðgallar vatnsins séu vegna mengun úr jarðvegi.

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands segir vatnið ekki talið heilsuspillandi þrátt fyrir gæði þess séu ekki viðunandi.

Vel vaktað

Útskolun á kerfinu gæti tekið tíma og er íbúum bent á neyta vatns í flöskum á meðan ástandið varir ef þeim líkar ekki vatnið í krananum.

Ástand neysluvatnsins í Hveragerði er vel vaktað og regluleg sýni eru og verða áfram tekin og rannsökuð. Áfram er unnið því greina hvað orsakar bragð- og lyktargalla í neysluvatninu með margskonar prófunum, athugunum og útskolun úr vatnsveitukerfi bæjarins. vinna er í forgangi hjá bænum, segir í tilkynningu bæjarins.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 160 eindir í 9 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 100,0%.
    • Margræðnistuðull var 1,63.