Finna vel fyrir skjálftum í Grindavík en þar eru átta sem neita að fara

Ritstjórn DV

2025-04-01 09:07

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Viðbragðsaðilar sem eru við störf í Grindavík segjast finna fyrir jarðskjálftum í bænum. Þar sjást einnig merki um aflögun og því ekki útilokað sprunguhreyfingar geti átt sér stað innanbæjar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í fréttavakt RÚV um stöðu mála á Reykjanesskaga eftir kvikuhlaup hófst á Sundhnúkagígsröðinni um klukkan 06:30 í morgun.

Rýmingu í Grindavík lauk í morgun en Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir átta einstaklingar ætli vera eftir í Grindavík. Hann segir lögregla þvingi fólk ekki til rýma, það þarna á eigin ábygð og þekki flóttaleiðir.

Þá ræddi RÚV við Ásrúnu Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar í Grindavík, sem var í bænum í morgun þegar boð um rýmingu barst. Segir hún skjálftana fyrirferðameiri og því fylgi ónotaleg tilfinning. Um 200 skjálftar hafa mælst síðan kvikuhlaupið hófst og fannst til dæmis einn, sem var 4 stærð, vel á höfuðborgarsvæðinu.

Veðurstofa Íslands sagði í tilkynningu í morgun merki frá aflögunarmælum séu sterkari en sést hafa í síðustu atburðum á Sundhnúksgígaröðinni. Það sýni talsvert magn kviku er á ferðinni. Merkin sem sjást sýna kvikan er hreyfa sig bæði til norðausturs en einnig til suðurs í átt Grindavík.

Samhæfingarstöð Almannavarna var virkjuð á áttunda tímanum og er þyrla Landhelgisgæslunnar tilbúin fara í loftið ef og þegar eldgos byrjar.

Nafnalisti

  • Ásrún Kristinsdóttirforseti bæjarstjórnar í Grindavík
  • Úlfar Lúðvíkssonlögreglustjóri
  • Veðurstofa Íslandstengiliður Íslands við milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar í umboði umhverfis- og auðlindaráðuneytisins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 230 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,74.