Um 200 fjölskyldur þurfa á stuðningi að halda

Ritstjórn mbl.is

2025-03-17 15:45

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, og Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, verða gestir Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra síðar í dag.

Fannar segir í samtali við mbl.is skýrsla frá Deloitte verði kynnt og lögð fram á fundinum sem Deloitte var fengið til gera til þess stilla upp ýmiss konar sviðsmyndum varðandi málefni Grindvíkinga og taka saman stöðuna í Grindavík.

Ríkisstjórnin mun funda um málefni Grindvíkinga á morgun en á fundi bæjarstjórnar Grindavíkur með ríkisstjórninni fyrr í þessum mánuði komu fram áherslur bæjarstjórnarinnar.

Þær eru meðal annars um breytingar á lögum vegna tekjustofna sveitarfélaga, framlengingu frests til óska eftir því Þórkatla kaupi íbúðarhúsnæði og framlengingu á ýmsum stuðningsaðgerðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki í Grindavík en stuðningsaðgerðirnar eiga renna út um næstu mánaðamót.

Fannar reiknar með kynnt verði í vikunni hvað verður um þær stuðningsaðgerðir sem hafa verið í gangi.

Það hefur verið áætlað um 200 fjölskyldur þurfi á stuðningi halda en ég held skýrslan frá Deloitte verði mjög upplýsandi, segir Fannar.

Biðstaðan svolítið sérkennileg

Hættustig almannavarna vegna hugsanlegs eldgoss við Sundhnúkagígaröðina hefur verið í gildi frá því í lok janúar og segir Fannar biðstaðan svolítið sérkennileg.

Við venjulegar aðstæður væri hættustig tekið talsvert alvarlega og er það auðvitað líka en samt er haldið úti starfsemi í bænum og það er dvalið í mörgum húsum. Þetta er því erfitt fyrir almannavarnir og bæjaryfirvöld átta sig á stöðunni, segir hann.

Fannar segir allir séu viðbúnir því það byrji gjósa en svo er bara spurning um tímasetninguna á því. Hann segir þægilegra viðfangs takast á við gosið eins og veðráttan hafi verið undanfarið.

Nafnalisti

  • Ásrún Helga Kristinsdóttirforseti bæjarstjórnar Grindavíkur
  • Fannar Jónassonbæjarstjóri
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • ÞórkatlaFasteignafélagsins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 291 eind í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 83,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.