Menning og listir

Birgitta, Ingunn og Rán þóttu bestar

Ritstjórn mbl.is

2025-03-06 14:45

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Ingunn Ásdísardóttir og Rán Flygenring hlutu Fjöruverðlaunin 2025, bókmenntaverðlaun kvenna og kvára á Íslandi, sem voru afhent í Höfða í dag.

Birgitta Björg fékk verðlaun í flokki fagurbókmennta fyrir skáldsöguna Moldin heit; Rán í flokki barna- og unglingabókmennta fyrir bókina Tjörnin, og Ingunn í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis fyrir bókina Jötnar hundvísir. Norrænar goðsagnir í nýju ljósi.

Þetta í nítjánda sinn sem Fjöruverðlaunin eru veitt og í tíunda sinn síðan borgarstjóri Reykjavíkur, bókmenntaborgar UNESCO, gerðist verndari verðlaunanna og bauð Heiða Björg Hilmisdóttir gesti velkomna. Verðlaunahafar fengu verðlaunagripi gerða af listakonunni Koggu, segir í tilkynningu.

Rætt verður við verðlaunahafana í Morgunblaðinu á laugardag.

Rökstuðningur dómnefnda:

Moldin heit eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur:

Listir, náttúra og ólgandi tilfinningar takast á í bókinni Moldin heit eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttur. Hrynjandi ljóðræns textans knýr framvindu áfram þar sem meginstef eru ást, missir og innri leit. Form texta og litanotkun ljær frásögninni dýpt og er lesanda gefið rými til skynja og túlka atburðarás sem lýkst upp eftir því sem líður á og rís hæst í sólódansi aðalpersónunnar. Birgitta Björg slær hér nýjan og forvitnilegan bókmenntatón.

Jötnar hundvísir. Norrænar goðsagnir í nýju ljósi eftir Ingunni Ásdísardóttur

Í bók sinni Jötnar hundvísir. Norrænar goðsagnir í nýju ljósi dregur Ingunn Ásdísardóttir upp áhugaverða mynd af jötnum og mögulega ólíku hlutverki þeirra en mótast hefur hingað til í vitund fólks. Með því rannsaka sjálfstætt hlutverk jötna í öðrum heimildum en Eddu Snorra Sturlusonar virðist sem jötnar hafi gengt mikilvægara hlutverki; verið aldnir og fróðir (hundvísir) en ekki ófreskjur. Bókin dregur fram hve lifandi vísindi þjóðararfurinn er og færir bæði fróðleiksfúsum aðgengilegt efni og leggur til málanna í rannsóknarheimi norrænnar goðafræði.

Tjörnin eftir Rán Flygering

Tjörnin eftir Rán Flygenring fjallar meðal annars um leikgleði, vináttu og málamiðlanir. Garður einn er uppáhaldsleiksvæði tveggja vina og dag einn taka þau eftir dæld í grasinu og þá hefst ævintýrið. Myndirnar kallast vel á við textann en líka íslenskan nútíma og á afslappaðan hátt er ýmsum áhugaverðum orðum bætt við orðaforða ungra lesenda, til dæmis krapagildra og krokketbogi. Tjörnin er fallegt og fyndið listaverk en líka skemmtileg og fræðandi saga.

Í dómnefndum sátu:

Fagurbókmenntir:

Jóna Guðbjörg Torfadóttir, framhaldsskólakennari

Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræðingur

Sigrún Birna Björnsdóttir, framhaldsskólakennari

Fræðibækur og rit almenns eðlis:

Brynja Helgu Baldursdóttir, íslenskufræðingur

Hulda Steingrímsdóttir, umhverfisfræðingur

Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor í bókmenntafræði

Barna- og unglingabókmenntir:

Guðlaug Richter, íslenskufræðingur

Helga Birgisdóttir, lektor í íslensku

Júlía Margrét Sveinsdóttir, bókmenntafræðingur

Nafnalisti

  • Birgitta Björg Guðmarsdóttirblástursleikari
  • Brynja Helgu Baldursdóttiríslenskufræðingur
  • Edda Snorra
  • Guðlaug Richteríslenskufræðingur
  • Heiða Björg Hilmisdóttirformaður
  • Helga Birgisdóttirhjúkrunarfræðingur
  • Hulda Steingrímsdóttirumhverfisfræðingur
  • Ingunn Ásdísardóttir2014
  • Jóna Guðbjörg Torfadóttirframhaldsskólakennari
  • Júlía Margrét Sveinsdóttirbókmenntafræðingur
  • Koggalistakona
  • Kristín Ástgeirsdóttirfyrrverandi framkvæmdastýra Jafnréttisstofu
  • Rán Flygenringrithöfundur
  • Rán Flygeringlistakona
  • Sigrún Birna Björnsdóttirframhaldsskólakennari
  • Sólveig Ásta Sigurðardóttirnýdoktor

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 420 eindir í 36 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 33 málsgreinar eða 91,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,40.