Stjórnmál

Sláandi ummæli Stefáns Einars – Ráðherra í ríkisstjórninni hafi verið viðriðinn tilraun til byrlunar og neyðarlegrar myndatöku

Ágúst Borgþór Sverrisson

2025-03-28 16:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þeir Morgunblaðsmenn, Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson, áttu í hressilegri samræðu á Bjórkvöldi Þjóðmála og eru þær umræður efni nýjasta þáttar hlaðvarpsins.

Ræddu þeir meðal annars um erfiðar uppákomur hjá ríkisstjórninni, aðallega í tengslum við Flokk fólksins, nýlega umdeildar fréttir um gömlur ástarmál Ásthildar Lóu Þórsdóttur, sem urðu til þess hún varð segja af sér embættti mennta- og barnamálaráðherra.

Stefán Einar benti á hneykslismál þyrftu ekki vera bundin við Flokk fólksins og eftirfarandi ummæli hans eru þess eðlis hlustandi hnýtur um þau:

Hvað þyrfti gerast til þessi ríkisstjórn spryngi bara í loft upp? Þessi mál hafa dálítið verið einskorðuð við Flokk fólksins en það geta komið upp mál sem tengjast hinum flokkunum. Hvað myndi gerast ef það kæmi í ljós einn af ráðherrum ríkisstjórnarinnar hefði fyrir nokkrum árum komið því reyna koma eiturlyfjum ofan í andstæðinga sína í pólitík og útvega af þeim myndir í annarlegum aðstæðum? Hvað myndi gerast við þær aðstæður þar sem slíkt kæmi upp úr krafsinu og yrði staðfest? Ég held stjórnin myndi ekki lifa það af. Og það er einmitt af þeim ástæðum sem ég held þessi ríkisstjórn muni ekki lifa af.

Er DV bar þessi ummæli undir Stefán Einar sagðist hann ekki vera vísa í raunverulegt dæmi. Þarna vorum við ræða stöðu ríkisstjórnarinnar, hversu veikt eða sterkt hún stendur og ég tek þar abstrakt dæmi, rétt eins og Andrés Magnússon kollegi minn, og lít svo á ég ekki vísa í neitt sérstakt í því sambandi, sagði Stefán Einar í stuttu samtali við DV.

Þáttinn heyra í spilaranum hér að neðan:

Nafnalisti

  • Andrés Magnússonframkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Stefán Einar Stefánssonfyrrverandi fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 287 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,60.