„Mjög ólíklegt“ að skjálftinn hafi fundist

Ritstjórn mbl.is

2025-04-03 16:05

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Veðurstofunni hafa ekki borist neinar tilkynningar vegna skjálftans sem varð á Reykjaneshrygg á þriðja tímanum í dag. Þá er talið mjög ólíklegt Íslendingar hafi fundið fyrir honum, þar sem hann átti sér raunar stað nær Kanada og Bretlandseyjum.

Minney Sigurðardóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir skjálftann, sem mældist 6,9 stærð, flokkast sem erlendan skjálfta.

Fólk á Reykjanesi mögulega fundið fyrir minni skjálftum

Eftir lesendur lýstu því sumir þeir hefðu fundið fyrir skjálftanum ákvað mbl.is hafa samband við Veðurstofuna.

Það er mjög ólíklegt hann hafi fundist hér á landi, segir Minney.

Hún bendir þó á fólk á Reykjanesi gæti hafa fundið fyrir minni skjálftum sem enn eru í gangi þar. Minney nefnir sérstaklega skjálfta, um 3 stærð, sem varð rétt fyrir klukkan 15.

Veðurstofan hefur þó ekki fengið neinar tilkynningar um hann heldur.

Nafnalisti

  • Minney Sigurðardóttirnáttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 154 eindir í 9 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 88,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,52.