Slys og lögreglumál

„Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykja­vík?“

Margrét Helga Erlingsdóttir

2025-04-01 19:39

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Kona sem býr steinsnar frá vettvangi banaslyss sem varð á Suðurlandi í gær segir það hafi verið viðbúið eitthvað hræðilegt myndi gerast á svæðinu í ljósi þess hve algengt er það hrynji úr skriðum Steinafjalls. Hún bindur vonir við Vegagerðin taki við sér áður en næsta stórslys verður.

Konan sem lést var ökumaður bílsins, tveir aðrir kvenkyns farþegar sluppu með minniháttar áverka. Slysið varð rétt vestan við Holtsós sem er við hliðina á heimili Ingveldar Önnu Sigurðardóttur, íbúa í Varmahlíð og varaþingmanns, sem fer um þennan veg daglega. Hún segir sorglegt kona látin vegna grjóthruns sem hafi verið hægt verjast því ítrekað hafi verið kallað eftir úrbótum af hálfu Vegagerðarinnar.

Ég keyri hérna fram og til baka á hverjum degi og stundum um háveturinn. Svo síðdegis þá horfir maður stundum upp í fjallið og hugsar með sér, hvenær fellur steinninn. En það gerðist í gær og það er kona sem fer ekki heim til sín, sem er gríðarlega sorglegt. Hugur manns er auðvitað hjá þessari fjölskyldu og vinkonum hennar.

Ítrekað hrynji grjót úr skriðum, sérstaklega á þessum árstíma. Skólabílar keyri um veginn minnst sex sinnum á dag.

Mamma klessti á stein fyrir tveimur, þremur árum og það var í niðamyrkri þegar hún var á leiðinni í vinnuna og maður hugsar þetta alltaf. Það er sjö ára stelpa sem fer af hlaðinu hjá mér í skólann og hvenær fellur næsti steinn á bíl?

Ingveldur segir nokkrar leiðir til úrbóta. Ein færa veginn neðar og önnur moka bita úr veginum þannig holan myndi grípa grjótið.

Eða setja eins konar varnargarð þar sem skriðan er næst veginum.

Ingveldur vonar Vegagerðin taki við sér.

Það er alltaf eins og það þurfi eitthvað gerast eða einhver deyi til við fáum úrbætur. Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík og á þessum þéttbýlu stöðum?

Sveitarstjórinn var á vettvangi slyssins

Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra, er líka í slökkviliðinu og var á vettvangi slyssins í gær.

Og í þessu tilfelli gátum við lítið gert annað en vernda vettvang en vettvangurinn var ekki fallegur. Það var svo sem ekki ljóst í upphafi hvað gerðist, það var ekki fyrr en seinna fólk áttaði sig á því sem hafði gerst, með þetta grjót.

þurfi aðgerðir.

Við erum með skólaakstur mikinn og þarna fara um fleiri þúsund manns. Ég hvet Vegagerðina til skoða þetta og hlusta.

Nafnalisti

  • Anton Kári Halldórssonsveitarstjóri Rangárþings eystra
  • Ingveldur Anna Sigurðardóttir24 ára meistaranemi í lögfræði við Háskóla Íslands

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 449 eindir í 26 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 23 málsgreinar eða 88,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,58.