Staða aðgerða gegn ofbeldi meðal barna

Innanríkisráðuneyti

2025-03-31 09:40

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Aðgerðahópur vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum hefur skilað fyrstu stöðuskýrslu um innleiðingu aðgerða. Aðgerðunum er ætlað sporna við þróun í átt auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi.

Fyrstu aðgerðirnar voru kynntar í júní 2024 og í september sama ár var ákveðið fjölga aðgerðum og auka fjármagn til þeirra. Aðgerðahópurinn, sem tók til starfa í september síðastliðnum, er skipaður fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytisins, dómsmálaráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins, innviðaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborgar, Barna- og fjölskyldustofu, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, embættis ríkislögreglustjóra, lögregluembætta og Heimilis og skóla. Mikil áhersla er lögð á þétta og góða samvinnu allra þeirra sem koma málefnum barna.

Rannsóknir hafa sýnt afleiðingar ofbeldis gegn börnum eru margþættar og alvarlegar fyrir börnin, fjölskyldur þeirra og samfélagið allt. Hvort sem um er ræða börn sem beita ofbeldi eða börn sem eru þolendur ofbeldis þá er mikilvægt barnvæn nálgun sem er bæði áfallamiðuð og menningarnæm höfð leiðarljósi.

Aðgerðahópurinn vinnur áfram heildstæðri innleiðingu, forgangsröðun og framkvæmd aðgerða. Vinnsla allra aðgerða er hafin og mótuð hefur verið áætlun fyrir innleiðingu og eftirfylgni til næstu tveggja ára. Með markvissri innleiðingu aðgerða og eftirfylgni er ekki einungis verið mæta þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin hér á landi heldur einnig greina umfang og eðli vandans, og þróa bestu starfshætti fyrir Ísland.

Áætlun fyrir aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnumStöðuskýrsla

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 268 eindir í 11 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 100,0%.
    • Margræðnistuðull var 1,61.