Stjórnmál

Tann­hjól í mulnings­vél?

Arnar Þór Jónsson

2025-03-29 13:02

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fyrr á tímum, þegar menn höfðu hvorki áttavita nothæf sjókort, krafðist það mikils kjarks sigla svo langt út landsýn hyrfi. Á úthafinu þurftu menn staðgóða þekkingu á hreyfingu himinhnatta. Sjómenn fyrri tíðar voru vísindamenn í þeim skilningi þeir kunnu skil á siglingafræði, en kunnu auk þess þá list hagræða seglum eftir vindi. er skipum siglt með stýri og skrúfu. Skipstjórnarmenn nútímans reiða sig á vélar, tölvur og tækni, en hvað gerum við þegar tæknin bilar? Þegar vindar og straumar gera tölvurnar ónothæfar? Þegar sjálfstýringin er ekki lengur í boði? Þá verða skipverjar treysta því skipstjórnendur séu vandanum vaxnir og kunni stjórna, þekki til verka og geti framkvæmt þær athafnir sem nauðsynlegar eru.

Íslenska þjóðarskútan er undir stjórn fólks sem er illa sér í siglingafræðum (stjórnskipun Íslands). Þau skortir að vísu ekki handbækur (lög og reglur) og auka raunar daglega við regluverkið, m.a. með bremsulausri innleiðingu á reglum frá ESB. En ef siglingin á vera slysalaus þarf meira en reglur og handbækur. Slysalaus sigling (réttátt og gott stjórnarfar) kallar á skipstjórnendur hafi nothæfan (siðferðilegan) áttavita. Ef áttavitinn týnist verða lögin valdatæki í höndum stjórnenda í stað þess verja borgarana fyrir valdbeitingu.

Í spilltum ríkjum situr almenningur uppi með stjórnmálamenn, embættismannastétt og sérfræðinga sem þjóna orðið spilltu kerfi frekar en fólkinu í landinu. Almannahagur, sannleiksást og réttlæti eru í framkvæmd látin víkja fyrir stéttarhagsmunum, hagsmunum hópsins sem menn tilheyra eða fyrir persónulegum hagsmunum þeirra sem t.d. vilja klífa valdastigann. Í slíkum stjórnkerfum molnar undan valdastofnunum, ekki síst vegna alls kyns málamiðlana, sem menn taka þátt í til verja eigin hagsmuni, jafnvel þótt það á kostnað almennings og kynslóða framtíðarinnar. Ein versta birtingarmynd slíks stjórnarfars (óstjórnar) er þegar réttarkerfin umpólast og lögfræðingar, lögmenn og dómarar hætta verja frelsi og hagsmuni almennings, en snúa sér þess í stað því verja eigin hag með því framfylgja vilja valdhafa/vilja ríkisins. Þegar svo er komið eru lögfræðingar ekki lengur sjálfstæðir og ábyrgir þjónar réttarins, heldur tannhjól í mulningsvél.

Samfélag sem hefur ekki lengur neinn siðferðilegan áttavita, heldur aðeins lagalegan og peningalegan áttavita, getur ekki þjónað fólkinu í landinu. Samfélag sem í orði kveðnu snýst í kringum bókstaf laganna en vanrækir æðstu markmið laganna er á helvegi.

Kjarklaust samfélag, án siðferðilegs áttavita og án trúar sem getur þjónað sem akkeri er dæmt til lenda í vandræðum. Þegar Alþingi, ráðuneyti og aðrar stjórnarstofnanir reyna stýra án áttavita og án akkeris þá eru þessar stofnanir orðnar ónothæfar og raunar hættulegar samfélaginu sem þær eiga þjóna.

Lokapunkti er náð þegar valdhafar eru orðnir tilbúnir til virða stjórnarskrána vettugi ef það þjónar þeirra eigin hagsmunum, þegar lagatækni er notuð til réttlæta lögleysu, þegar meginreglur laga eru orðnar yfirborðskenndu skrauti og þegar æðstu ráðamenn starfa utan við ramma stjórnarskrár og laga. Þetta sjáum við gerast þegar Alþingi undirbýr framsal á ríkisvaldi til ESB með frumvarpi um bókun 35 og í því hvernig ráðherrar í ríkisstjórn brjóta daglega gegn hlutleysisstefnu Íslands með því hella olíu á ófriðarbál í stað þess tala fyrir friði. Þá hefur hræsni og vanþekking leyst ábyrgð og þekkingu af hólmi.

Guð blessi Ísland.

Höfundur er lögmaður.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 594 eindir í 27 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 23 málsgreinar eða 85,2%.
    • Margræðnistuðull var 1,49.