Mál Breiðholtsskóla á borði menntamálaráðherra
Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir
2025-03-14 19:49
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Menntamálaráðherra segir að gera eigi gangskör í málum barna með fjölþættan vanda. Hún segir málaflokkinn hafa verið vanræktan í allt of langan tíma. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar vísar á bug ásökunum foreldra um að ekkert hafi verið aðhafst vegna ófremdarástands í Breiðholtsskóla.
Mikið hefur verið fjallað um ófremdarástand í Breiðholtsskóla, þar sem hópur drengja í sjöunda bekk og fleiri úr öðrum skólum hafa haldið öllu hverfinu í heljargreipum. Börn hafa ekki þorað að mæta í skólann og ofbeldi verið daglegt brauð.
Móðir drengs við skólann lýsti því í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að ráðist hafi verið á son hennar á leikvelli við Breiðholtsskóla í fyrradag, á sama tíma og foreldrar funduðu um stöðuna. Hún sagði son sinn hafa brotnað saman og grátbeðið hana um að þau flyttu úr hverfinu. Hún segir skólayfirvöld og borgina bregðast takmarkað við ástandinu og að grípa hefði átt inn í mun fyrr.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins síðdegis þar sem því er vísað á bug að ekkert hafi verið aðhafst af hálfu skólans eða sviðsins. Gripið hafi verið til ýmiskonar úrræða, til dæmis hafi stuðningur og sérkennsla verið aukin, hópaskiptingu verið breytt til að koma á vinnufriði í sjöunda bekk, velferðarsvið og barnavernd hefðu komið að málum og fræðsla hafi verið aukin. Skólastjórnendum finnist aðgerðir hafa skilað árangri, vinnufriður sé mun betri og nemendum líði betur.
Þar kemur jafnframt fram að fyrrnefnd árás sé litin alvarlegum augum og starfsfólk skólans hafi aðstoðað lögreglu við rannsóknina.
Mennta- og barnamálaráðherra segir þessi mál inni á borði ráðuneytisins og Menntamálastofnunar.
„Svo vorum við nú í ríkisstjórninni áðan að samþykkja frá okkur kostnaðarskiptingu sveitarfélaga vegna barna með fjölþættan vanda. Þannig að við erum virkilega að fara að taka til hendinni þar og gera gangskör í þessum málum sem hafa verið vanrækt í alveg gríðarlega langan tíma. Það verður að fara í markvissar aðgerðir og við erum að fara að gera það,“ sagði Ásthildur Lóa Þórsdóttir mennta- og barnamálaráðherra um málið að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun.
Nafnalisti
- Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 339 eindir í 16 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 81,3%.
- Margræðnistuðull var 1,47.