Hamas vill grípa til vopna gegn áformum Trumps

Ritstjórn mbl.is

2025-03-31 09:47

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Háttsettur leiðtogi Hamas hvetur stuðningsmenn um allan heim til grípa til vopna og berjast gegn áformum Donalds Trump Bandaríkjaforseta um flytja meira en tvær milljónir Gasabúa til nágrannalanda eins og Egyptalands og Jórdaníu.

Andspænis þessari vondu áætlun, sem sameinar fjöldamorð og hungursneyð, verður hver sem getur borið vopn, hvar sem er í heiminum, grípa til aðgerða, sagði Sami Abu Zuhri í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér.

Haldið ekki aftur af sprengju, kúlu, hnífi eða steini. Látum alla rjúfa þögnina.

Trump Bandaríkjaforseti hefur lagt til Palestínumönnum verði vikið frá Gasa og Bandaríkin fái endurreisa það.

Vill Bandaríkin eignist Gasa og byggi það upp

Trump sagði í viðtali í febrúar íbúar Gasasvæðisins myndu ekki snúa aftur heim, heldur ættu þeir varanleg heimili núna í nágrannaríkjunum.

Sagði Trump það gæti tekið mörg ár áður en Gasasvæðið yrði byggilegt á ný, og í millitíðinni ættu Bandaríkin eignast svæðið og byggja það upp.

Trump lýsti einnig yfir hann gæti stöðvað aðstoð til Egyptalands og Jórdaníu ef þau neituðu taka við íbúum Gasasvæðisins.

Nafnalisti

  • Abu Zuhri
  • Donald Trump Bandaríkjaforsetafrændi hennar
  • Trumpkjörinn forseti Bandaríkjanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 200 eindir í 9 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 88,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.