Viðskipti

Eru „viðskipti aldarinnar“ farin að súrna?

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-03-31 20:09

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Tveimur árum eftir UBS keypti Credit Suisse í björgunaraðgerð á vegum svissneskra stjórnvalda hefur bankinn lent í vaxandi árekstrum við stjórnvöld og eftirlitsaðila.

Fyrirhugaðar reglubreytingar, sem gætu þvingað UBS til halda allt 25 milljörðum dala í viðbótareiginfjárhlutfalli, hafa skapað mikla óvissu um framtíð bankans og valdið lækkun á hlutabréfaverði hans, samkvæmt Financial Times.

Spennan eykst milli UBS og svissneskra stjórnvalda

Karin Keller-Sutter, fjármálaráðherra Sviss, hefur lítið viljað gefa eftir gagnvart UBS og lýsti því nýlega yfir hún væri fyrst og fremst gæta hagsmuna skattgreiðenda, á meðan UBS hugsaði um eigin viðskiptahagsmuni.

Ríkisstjórnin hyggst herða eiginfjárkröfur á UBS, sem hefur valdið hörðum viðbrögðum bankans.

Sérstaklega er rætt um breytingar sem myndu krefjast þess UBS styddi erlend dótturfélög sín með 100% eigin í stað 60% eins og er.

Sergio Ermotti, forstjóri UBS, hefur kallað þessar tillögur algerlega ofstjórnarlegar og hefur bankinn gripið til öflugrar hagsmunagæslu í von um milda reglurnar.

Hins vegar hafa Finma, fjármálaeftirlit Sviss, og seðlabanki landsins lýst yfir stuðningi við áformin.

Óvissa er um framtíð UBS á markaði

Óvissan hefur haft áhrif á hlutabréfaverð UBS, sem hefur dregist aftur úr bandarískum og evrópskum keppinautum sínum síðustu mánuði.

Á sama tíma hafa evrópskir bankar eins og UniCredit og Santander hækkað um 50% og 40%, á meðan Euro Stoxx bankavísitalan hefur hækkað um 100% frá því UBS keypti Credit Suisse í mars 2023.

Það sem UBS hefur stjórn á gengur vel: samruni, minnkun á eignum utan kjarnastarfsemi og skipulagsbreytingar. En óvissan um reglurnar hefur valdið því bankinn hefur verið undir álagi á markaði, segir Andreas Venditti, bankasérfræðingur hjá Vontobel.

Stefnumótun í óvissu

UBS hafði vonast til yfirtakan á Credit Suisse myndi styrkja samkeppnisstöðu þess gagnvart bandarískum stórbönkum eins og Morgan Stanley, en hertar reglur gætu sett strik í reikninginn.

Bankinn hafði sett sér það markmið auka eignir í eignastýringu úr 3,8 billjónum dala í yfir 5 billjónir fyrir 2028 og laða sér 100 milljarða dala í eignasöfn á ári fyrir 2025.

Markaðurinn hefur verið vonsvikinn með vöxt UBS í eignastýringu síðustu fjórðunga, segir Johann Scholtz, sérfræðingur hjá Morningstar, sem telur auknar eiginfjárkröfur gætu sett spurningarmerki við stefnu UBS um frekari útþenslu á bandarískum markaði.

Drög nýjum reglum verða lögð fyrir svissneska þingið í júní, en ákvörðun fjármálaráðuneytisins um innleiða breytingarnar í gegnum löggjöf frekar en framkvæmdarheimildir þýðir reglurnar taka líklega ekki gildi fyrr en árið 2028.

UBS stendur því frammi fyrir þriggja ára baráttu um framtíð sína í Sviss.

Þrátt fyrir spennuna telja margir sérfræðingar UBS og stjórnvöld muni samkomulagi.

Sviss hefur alltaf komist þeirri niðurstöðu landið hagnist verulega á því hafa UBS með höfuðstöðvar sínar þar, rétt eins og UBS hagnast á vera í Sviss. Þetta er gagnkvæm sambúð og niðurstaðan mun líklega verða sanngjörn fyrir báða aðila, sagði einn af stærstu hluthöfum UBS í samtali við Financial Times.

Nafnalisti

  • Andreas Venditti
  • Euro Stoxx
  • Financial Timesbreskt dagblað
  • Finmafjármálaeftirlit Sviss
  • Johann Scholtz
  • Karin Keller-Sutterþingmaður Frjálslynda flokksins
  • Morgan Stanleyfjárfestingabanki
  • Morningstargreiningarfyrirtæki
  • Santanderspænskur banki
  • Sergio Ermotti
  • UBSsvissneskur banki
  • UniCreditítalskur banki

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 505 eindir í 22 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,80.