Sæki samantekt...
Ekki hefur sést virkni á gossprungunni á Sundhnúkagígaröðinni frá því um miðjan dag í gær en glóð logar enn í nýja hrauninu og er svæðið óstöðugt og varasamt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands en þar segir að uppúr klukkan 21 í gærkvöld hafi farið að draga úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga.
Gikkskjálftavirkni við Reykjanestá hefur fært sig suðvestar í átt að Eldey og má búast við áframhaldandi jarðskjálftavirkni á meðan svæðið er að jafna sig að því er fram kemur í tilkynningunni.
2800 skjálftar síðasta sólarhringinn
Síðastliðinn sólarhring hafa mælst um 2800 skjálftar á Reykjanesskaga og Reykjaneshrygg í tengslum við kvikuhlaupið. Fjöldi tilkynninga hafa borist Veðurstofunni um að skjálftarnir hafa fundist í byggð, allt frá Hrútafirði að Kirkjubæjarklaustri.
Undir lok nætur var skjálftavirknin nokkuð dreifð á kvikuganginum frá Stóra-Skógfelli í suðri og að Vatnsleysuheiði nyrst og dýpi þeirra haldist á um 4 — 6 km.
Nafnalisti
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 149 eindir í 7 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 7 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,77.