Tals­maður Pútíns hrósar Rubio fyrir um­mæli um leppastríð

Samúel Karl Ólason

2025-03-06 12:37

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, segir ummæli Marcos Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um innrás Rússa í Úkraínu leppastríð milli Bandaríkjanna og Rússlands, vera alfarið í takt við viðhorfa yfirvalda í Kreml og sérstaklega í takt við viðhorf Pútíns. Þessu hefðu Rússar ítrekað haldið fram.

Rubio sagði í gær binda þyrfti enda á stríðið í Úkraínu, var það eftir Donald Trump, forseti, stöðvaði hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum. Hann stöðvaði einnig samstarf Bandaríkjamanna með Úkraínumönnum þegar kemur eftirliti og upplýsingastreymi á víglínunni, sem reynst hefur Úkraínumönnum verulega mikilvægt.

Meðal annars gerir breytingin Úkraínumönnum erfiðara verjast ítrekuðum og umfangsmiklum eldflauga- og drónaárásum Rússa og gera árásir gegn Rússum bakvið víglínuna.

Sjá einnig: Ákvörðuninni líkt við eftirgjöf bandamanna gagnvart Hitler

Það hefur verið ljóst frá upphafi Trump lítur á þetta sem langvarandi átök í pattstöðu, sagði Rubio í viðtali í gærkvöldi og bætti hann svo við:

Hreint út sagt, er þetta leppastríð milli tveggja kjarnorkuvelda. Bandaríkjanna, sem hjálp Úkraínu, og Rússa og það þarf enda. Þá gagnrýndi hann Úkraínumenn og Evrópumenn fyrir hafa enga áætlun til binda enda á innrás Rússa.

Úkraínumenn segjast ekki berjast fyrir Bandaríkin, heldur séu þeir berjast fyrir tilvist þeirra og lýðræði.

Peskóv sagði í morgun, samkvæmt frétt Reuters, ummæli Rubios væru alfarið í samræmi við afstöðu Rússa og þeir hefðu ítrekað haldið þessu fram. Þeir væru einnig sammála um binda þyrfti enda á átökin og þetta stríð, sem er innrás Rússa.

Þrýsta á Úkraínu en ekki Rússland

Trump-liðar hafa verið harðlega gagnrýndir í Evrópu og víðar fyrir aðgerðir sínar vegna innrásarinnar undanfarna daga og fyrir mikla kúvendingu í utanríkisstefnu Bandaríkjanna varðandi Rússland. Bandaríkjamenn hafa beitt Úkraínu miklum þrýstingi en lítið sem ekkert gengið á Rússa og þess í stað ítrekað talað máli Rússa og Pútíns.

Sjá einnig: Hegseth fyrirskipar hlé á netaðgerðum gegn Rússum

Bandaríkjamenn hafa beitt Úkraínumenn gífurlegum þrýstingi og hætt áðurnefndri aðstoð. Þá hafa borist fregnir af því í morgun Trump ætli sér binda enda á vernd úkraínskra flóttamanna í Bandaríkjunum, svo auðveldara vísa þeim úr landi.

Einnig sagði Politico frá því ráðgjafar Trumps hafi átt í viðræðum við pólitíska andstæðinga Vólódimírs Selenskí, forseta Úkraínu. Fjórir Trump-liðar hefðu átt í leynilegum viðræðum við nokkra af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Úkraínu og sneru þær meðal annars því hvort hægt væri halda skyndikosningar í Úkraínu.

Trump hefur kallað Selenskí einræðisherra og básúnað rússneskum áróðri um úkraínski forsetinn neiti halda kosningar.

Ráðamenn í alræðisríkinu Rússlandi hafa ítrekað haldið því fram hann umboðslaus þar sem hann er ekki búinn halda nýjar kosningar, þar sem kjörtímabili hans ætti vera lokið.

Stjórnarskrá heimilar ekki kosningar á stríðstímum

Stjórnarskrá Úkraínu heimilar ekki kosningar á meðan herlög eru í gildi í Úkraínu, sem þau eru vegna innrásar Rússa, og Úkraínumenn segja það halda kosningar yrði gífurlega erfitt með tilliti til átakanna, stór hluti Úkraínu hafi verið hernuminn og milljónir hafi flúið land. Fjölmargir kjósendur eru á víglínunni í Úkraínu og aðrir á hernumdum svæðum.

Nýjar kannanir sýna vinsældir Selenskís í Úkraínu hafa aukist undanfarnar vikur, samhliða aðgerðum Trump-liða gegn honum. Þá sýna þær einnig hann nýtur mun meira fylgis en þeir andstæðingar hans sem ráðgjafar Trumps hafa verið ræða við.

Helsti pólitíski andstæðingur Selenskís þessa dagana er Valerí Salúsjní, fyrrverandi yfirmaður herafla Úkraínu og núverandi sendiherra í Bretalandi.

Salúsjní fór hörðum orðum um Trump og erindreka hans á fundi í Lundúnum í morgun. Þar sagði hann meðal annars Trump væri í samfloti með Pútín og þeir saman væru rústa alþjóðakerfinu.

Hann sagði það Bandaríkjamenn gætu ekki skilgreint innrás Rússa í Úkraínu sem ofstopa eða árás væri gífurlega áskorun fyrir heiminn og sérstaklega Evrópu.]] Við sjáum þetta er ekki bara öxulveldi hins illa og Rússland reyna breyta alþjóðakerfinu, heldur eru Bandaríkin rústa þessu kerfi. [[Þetta sagði Salúsjní. Hann sagði einnig aðgerðir Trumps undanfarna daga sýndu hann væri stilla sér við hlið Rússlands og varaði við því haldi Bandaríkin þessari stefnu gæti Atlantshafsbandalagið heyrt sögunni til á næstu árum.

Þurfa langvarandi frið og öryggi

Úkraínumenn hafa ítrekað sagt friðarsamkomulagi þurfi fylgja góðar og bindandi öryggistryggingar, til tryggja Rússar verji ekki næstu árum í byggja upp heri sína á nýjan leik og gera aðra innrás.

Selenskí hefur varað við því án aðkomu Bandaríkjanna eigi ríki Evrópu erfitt með veita Úkraínumönnum góðar öryggistryggingar.

Án slíkra ráðstafana er, eins og áður hefur komið fram, fátt sem kemur í veg fyrir Rússar byggi upp her sinn nýju á nokkrum árum og geri aftur innrás í Úkraínu. Rússar væru í betri stöðu en Úkraínumenn til byggja upp efnahag sinn og her á nýjan leik, vegna þeirra miklu skemmda sem árásir Rússa hafa valdið í Úkraínu.

Erfitt gæti verið fyrir Úkraínu stöðva aðra innrás við slíkar kringumstæður.

Úkraínumenn óttast líka án góðra öryggistrygginga muni reynast erfitt þá fjölmörgu Úkraínumenn sem hafa flúið land aftur heim.

Ráðamenn í Rússlandi segja þeir muni aldrei sætta sig við hermenn annarra ríkja í Úkraínu, til tryggja frið þar. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra, ítrekaði það í morgun og gagnrýndi Emmanuel Macron, forseta Frakklands, og Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, fyrir leggja fram ætlanir um slíkt.

Við sjáum ekki neitt rými til málamiðlana varðandi það, sagði Lavrov.

Nafnalisti

  • Dmitrí Peskóvtalsmaður Pútíns
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Emmanuel Macronforseti
  • Hitlerhún frá sér af gleði
  • Keir Starmerleiðtogi Verkamannaflokksins
  • Marcos Rubio
  • Politicobandarískt blað
  • Sergei Lavrovutanríkisráðherra
  • Valerí Salúsjníyfirmaður herafla Úkraínu
  • Vladimírs Pútínforseti Rússlands
  • Vólódimírs Selenskí

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 969 eindir í 45 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 40 málsgreinar eða 88,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.