Leikskólarnir ekki fyrst og fremst fyrir for­eldra

Auðun Georg Ólafsson

2025-03-06 12:32

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Stærsti vandi leikskólanna í dag er skortur á leikskólakennurum. Og hvernig ætla einkafyrirtækin leikskólakennara? Þau ætla hækka launin þeirra. Er þetta ekki sama fólk og kvartar yfir því oft á tíðum ef laun kennara eru hækkuð, sagði Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Er það sanngjarnt sumir og sum börn fái menntaða leikskólakennara af því það er fyrirtæki sem er tilbúið borga fyrir bara þessi börn? Mér finnst það í rauninni ekki. Þarna erum við náttúrlega líka komin því sem kennarar hafa verið biðja um sem er jöfnun launa á milli markaða. Svo velta fyrir sér bara gagnvart barninu: ef barn er í skóla sem er rekinn af viðkomandi fyrirtæki og foreldri missir vinnuna, hættir eða hvernig það er, er þá barnið líka rekið af leikskólanum? Það eru alls konar álitamál í þessu. Það er ekki þetta gangi bara eins og látið er líta út fyrir, bætti Ásthildur Lóa við.

Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri, ræddi leikskólamálin á Bylgjunni í Bítinu í morgun og sagði sorglegt ekki verði af vinnustaða-leikskólum eins og stefnt hefur verið . Einar segir Alvotech enn geta byggt leikskóla en með yfirlýsingum nýs meirihluta væri ljóst ekki yrði greitt með hverju barni með þjónustusamningi. Kostnaðurinn yrði því miklu meiri.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins hóf umræðuna á Alþingi í dag og minnti á samkvæmt tölum frá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar þá voru þann 2. júní 2024 nærri 700 börn eldri en 12 mánaða bíða eftir plássi á leikskólum borgarinnar. Vandamálið væri til staðar víða um land og til mæta þörfum samfélagsins þyrfti byggja fleiri leikskóla, fjölga leikskólakennurum og öðru starfsfólki. Hún sagði meirihlutanum ekki hugnast lausnir einkaframtaksins og afstaða kæmi í veg fyrir byggður yrði nýr leikskóli þar sem ætla mætti leikskólakennarar gætu fengið betri laun.

Ráðherra minnti á hún væri ekki í borgarstjórn en ýmis álitamál væru uppi um fyrirtækjaleikskóla.

Samkvæmt þeim fregnum sem ég hef heyrt þá er það bara ekki rétt þau ætli banna þennan leikskóla hjá borginni. Þau ætla hins vegar ekki skilst mér greiða með þessum börnum. Lausnir einkaframtaksins geta verið og eru gríðarlega mikilvægar en þetta þarf skoða út frá öllum þáttum og hér skapist ekki tvöfalt kerfi, sagði Ásthildur Lóa og bætti síðar við: Leikskólar eru ekki fyrst og fremst fyrir foreldra, þeir eru fyrst og fremst fyrir börn og það eru hagsmunir barna sem við þurfum hafa í huga.

Nafnalisti

  • Alvotechíslenskt líftæknilyfjafyrirtæki
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Einar Þorsteinssonoddviti
  • Guðrún Hafsteinsdóttirfyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 445 eindir í 20 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 18 málsgreinar eða 90,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,69.