Viðskipti

Hooters sækir um gjaldþrotavernd

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-04-01 17:28

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Bandaríska veitingakeðjan Hooters of America hefur sótt um gjaldþrotavernd í Texas en keðjan áformar selja alla sína veitingastaði til hóps fjárfesta sem tóku þátt í stofnun fyrirtækisins í von um greiða upp skuldir sínar.

Hooters rekur 151 veitingastað og eru 154 veitingastaðir til viðbótar reknir af sérleyfishöfum. Flestir veitingastaðir keðjunnar eru staðsettir í Bandaríkjunum.

Fyrirtækið segir það muni halda veitingastöðum þess opnum á meðan gjaldþrotaferlið standi yfir. Hooters hefur þó undanfarin misseri glímt við sömu vandamál og aðrar veitingakeðjur með hækkandi kostnað og meiri sparsemi meðal viðskiptavina.

Sjá einnig]] Þegar Hooters rak sitt eigið flugfélag

Sal Melilli, framkvæmdastjóri Hooters of America, segir hins vegar veitingastaðirnir séu komnir til vera og gjaldþrotaverndin marki mikilvægan áfanga í viðleitni félagsins til styrkja fjárhagslegan grunn fyrirtækisins.

Veitingastaðurinn Hooters var stofnaður árið 1983 og varð frægur fyrir bæði kjúklingavængi sína sem og afgreiðslustúlkurnar sem gengu um í appelsínugulum stuttbuxum og sýnilegum bolum.

Á einu tímabili rak Hooters einnig flugfélag, sem stofnað var árið 2003 af Robert Brooks, stofnanda Hooters, þegar hann keypti leiguflugfélagið Pace Airlines í desember 2002. Hugmyndin var þá nota flugfélagið sem óhefðbundna auglýsingu en flugfélagið sjálft hætti síðan starfsemi í apríl 2006.

Nafnalisti

  • Hootersveitingastaður
  • Hooters of America
  • Pace Airlines
  • Robert Brooks

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 202 eindir í 10 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 80,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.