EfnahagsmálViðskipti

„Þetta er ákvörðun um sjálfskaða“

Ritstjórn mbl.is

2025-03-11 13:25

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

pólitíska vegferð sem farin er af stað með hótunum um tollastríð er í raun vegferð þar sem undið er ofan af þróun síðustu hálfu öldina sem hefur leitt til gríðarlegrar velmegunar um allan heim og lyft milljónum fólks úr sárri fátækt og leikið lykilhlutverk lækka verð á vörum. Ljóst er tollastríð mun auðvitað skaða okkur öll og leiða til langtímaskaða.

Þetta var meðal þess sem Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sagði á opnum fundi í efnahags- og viðskiptanefnd í morgun.

Þórarinn og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fóru þar meðal annars yfir alþjóðlegar horfur og möguleg áhrif alþjóðlegra vendinga á verðlag hér heima fyrir. Sagði Ásgeir aukinn óstöðugleiki gæti leitt til færri ferðamanna frá Bandaríkjunum sem væri eitthvað sem Íslendingar þyrftu hafa áhyggjur af.

Fyrst og fremst hækkun á vöruverði

Ásgeir sagði vendingarnar undanfarið gætu fyrst og fremst komið fram í hækkunum á vörum. Nefndi hann í Norður-Ameríku hefði um langt skeið verið byggt upp eitt viðskiptasvæði milli Mexíkó, Bandaríkjanna og Kanada þar sem fyrirtæki skipulegðu framleiðslu sína yfir löndin þrjú. Ódýrt hráefni væri fyrir norðan, ódýrt vinnuafl fyrir sunnan og Bandaríkin svo í miðjunni.

Nefndi hann bílaframleiðendur sendu varahluti fram og til baka eftir því hvað væri hagkvæmast, en með því rífa þessar keðjur í sundur myndi koma til gríðarlegur kostnaður.

Sama ætti við ef viðskipti yfir hafið til Evrópu myndu dragast saman, þá væri hægt sjá mikla hækkun á vöruverði.

Lönd eins og Ísland verðtakar á erlendum mörkuðum

Nefndi hann þá Ísland gæti lent á milli ef til tollastríðs kæmi og lagðir væru tollar á útflutningsvörur Íslands. Sagði Ásgeir lítil lönd, eins og Ísland, væru verðtakar á erlendum mörkuðum og ef til tollastríðs kæmi væri líklegt slíkur kostnaður myndi lenda á Íslandi. Tók hann hins vegar fram ekkert væri ljóst í þessum efnum og þetta væru bara vangaveltur.

Þurfum hafa áhyggjur af færri heimsóknum

Ásgeir sagði svo allt tal um tolla hefði þegar orðið til þess Kanadamenn ferðuðust síður til Bandaríkjanna og keyptu síður bandarískar vörur. Sama ætti við um Bandaríkjamenn sem væru fresta ferðalögum til Kanada. Enda væri það þannig óvissa leiddi til þess fólk minnkaði ferðalög og tæki aðrar stærri ákvarðanir eins og kaupa hús, eða velja fara á eftirlaun.

Benti Ásgeir á ferðaþjónustan á Íslandi væri að miklu leyti byggð á ferðamönnum frá Bandaríkjunum og ef óstöðugleiki væri þar gæti það komið fram í færri heimsóknum til Íslands. Það er eitthvað sem við þurfum helst hafa áhyggjur af, sagði hann.

Seðlabankar geta voðalega lítið gert við þessu

Þórarinn sagði það vinda ofan af því viðskiptakerfi sem hafi verið byggt upp síðustu áratugi í heiminum myndi leiða til langtímaskaða og seðlabankar gætu lítið gert til bregðast við því.

Seðlabankar geta voðalega lítið gert við þessu. Þetta er ákvörðun um sjálfskaða. Það er lítið sem við getum gert, sérstaklega ef það hægir á sama tíma á efnahagsumsvifum og verðbólga fer af stað, sagði Þórarinn.

Ákvarðanir teknar á klukkutíma fresti.

Fór hann yfir það hvernig tollastríð gæti haft þau áhrif heimshagvöxtur færi niður á við og það gæti haft áhrif á útflutning Íslands þar sem eftirspurn eftir vörunum væri minni. Það myndi leiða til minni hagvaxtar og vörur erlendis frá yrðu dýrari. Til viðbótar gætu tollar á okkur aukið þessi áhrif enn frekar.

Sagði Þórarinn jafnframt vandasamt fylgjast með og meta stöðuna nákvæmlega, þegar svo virtist sem ákvarðanir væru teknar um þetta á klukkutíma fresti. Tók hann þó fram bankinn væri meta og greina möguleg áhrif tollastríðs á íslenskan þjóðarbúskap.

Nafnalisti

  • Ásgeir JónssonSeðlabankastjóri
  • Norður-Ameríkusá stærsti í heimi
  • Þórarinn G. Péturssonaðalhagfræðingur

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 638 eindir í 32 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 30 málsgreinar eða 93,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,61.