Íslensk stjórnvöld hringi í Trump

Ritstjórn mbl.is

2025-04-03 23:58

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þetta er náttúrulega bara enn ein ástæðan til gleðjast yfir því fara ekki álpast inn í Evrópusambandið, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins í samtali við mbl.is um tollahækkanir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta sem skella á Evrópu af fullum þunga eins og forsetinn nýkjörni hefur boðað í ræðu og riti frá því í janúar.

Þetta styrkir stöðu okkar hlutfallslega í samkeppni við önnur lönd um innflutning til Bandaríkjanna, en þetta er alls ekki heppilegt fyrir heimsviðskiptin og hagvöxt um allan heim, ekki er hægt halda því fram þetta skref fram á við í þeim efnum, en Bandaríkin eru í svo sterkri stöðu verandi sjálfum sér nóg um flest þetta er erfiðara fyrir flesta aðila aðra, segir formaðurinn.

Heyri í karlinum

Heldur hann áfram með þeim orðum eigi hann ráðleggja ríkisstjórn Íslands eða forsætisráðherra mæli hann með því ráðherra fylgi fordæmi annarra ráðherra á Norðurlöndum og heyri karlinum. Tala vinsamlega við hann, hann mun kunna meta það, benda á við höfum átt í sérstöku sambandi við Bandaríkin lengi. Bandaríkin hafi fyrst þjóða viðurkennt fullveldi Íslands, Bandaríkin hafi tekið sér varnir landsins áður en þau urðu aðili seinni heimsstyrjöldinni, það lífslínan eins og Jónas frá Hriflu kallaði það, segir Sigmundur.

Landfræðileg staða Íslands orðin aftur í miðju heimsmálanna og ráðleggur Sigmundur íslensk stjórnvöld bendi Trump á Bandaríkin séu í plús í vöruskiptajöfnuði gagnvart Íslandi og hvort ekki komi til greina nota Ísland sem sýnidæmi.

Klykkir út með varnaðarorðum

Þannig bandarísk stjórnvöld geti sýnt öðrum þjóðum þeir sem vilji stunda viðskipti við Bandaríkin og kaupa af þeim, ekki síður en flytja til þeirra, uppskeri verðlaun og séu menn til í gagnkvæm viðskipti hægt falla frá tollum, segir Sigmundur Davíð og kastar lokum fram varnaðarorðum til íslenskra stjórnvalda.

Umfram allt, ekki láta Evrópusambandið draga Ísland inn í mótvægisaðgerðir Evrópusambandsins gegn Bandaríkjunum, það væri algjörlega fatalt, það þarf forðast umfram allt, segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins lokum.

Nafnalisti

  • Donald Trumps Bandaríkjaforsetaþar gert ráð fyrir 5,7 milljörðum dollara í múrinn sem forsetinn vill reisa á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó
  • Jónasviðskiptafræðingur
  • Sigmundur Davíð Gunnlaugssonformaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra
  • Trumpkjörinn forseti Bandaríkjanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 371 eind í 10 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,57.